Pressan

Farage vill senda erlenda glæpamenn í alræmt risafangelsi í El Salvador

Mynd
Samsett mynd/Getty

Nigel Farage, leiðtogi Umbótaflokksins í Bretlandi, hyggst senda erlenda afbrotamenn úr breskum fangelsum til afplánunar í El Salvador komist flokkurinn til valda í Bretlandi.

Daily Mail greinir frá þessu og segir Farage þegar hafa átt viðræður við embættismenn í El Salvador um möguleikann á að Bretar leigi fangelsispláss þar í landi.

Lee Anderson, formaður flokksins, er jafnframt sagður stefna á ferð til El Salvador á næstu mánuðum þar sem hann mun ræða málið við ríkisstjórn Nayib Bukele forseta.

Fangelsiskerfi El Salvador hefur vakið heimsathygli undanfarin ár vegna gríðarlega harðra aðstæðna, ekki síst í hinu risavaxna CECOT-fangelsi sem Bukele lét reisa sem hluta af herferð sinni gegn alræmdum glæpagengjum landsins.

Sjá einnig: Það vill enginn dvelja í þessu fangelsi

Zia Yusuf, talsmaður flokksins í innanríkismálum, kynnti stefnu flokksins í fangelsismálum í gærkvöldi.

Hann sagði flokkinn ætla að breyta lögum þannig að þeir sem fremja alvarlegustu glæpina, þar á meðal morð, manndráp, nauðganir og alvarleg ofbeldisbrot, verði látnir afplána dóma sína að fullu. Benti hann á að yfir 10 þúsund erlendir ríkisborgarar væru í breskum fangelsum.

„Við munum vísa öllum erlendum ríkisborgurum úr fangelsum okkar úr landi. Ef heimalönd þeirra neita að taka við þeim munum við senda þá til að afplána dóma sína í löndum á borð við El Salvador og Kósóvó.“

Hann sagði fangelsisplássið sem þannig losnaði verða nýtt til að tryggja að alvarlegir afbrotamenn yrðu áfram bak við lás og slá.

Áformin minna að einhverju leyti á stefnu Donalds Trump Bandaríkjaforseta, en Bandaríkin hafa gert samkomulag við stjórnvöld í El Salvador um að senda þangað fanga frá Bandaríkjunum.

Þekktasta fangelsi El Salvador er CECOT-fangelsið sem var reist að fyrirskipan Bukele árið 2022 og opnað ári síðar.

Það var hannað fyrir allt að 40.000 fanga og er talið að um 15.000 manns séu þar nú. Margir fanganna eru grunaðir um tengsl við glæpagengi sem héldu íbúum landsins í heljargreipum um áratugaskeið, en þar eru einnig dæmdir morðingjar og nauðgarar.

Aðstæður eru afar erfiðar og hafa mannréttindasamtök gagnrýnt aðstæður í fangelsinu. Fangar eru lokaðir inni í gluggalausum steinsteypuklefum í 23 og hálfa klukkustund á sólarhring og fá aðeins hálftíma utan þeirra til líkamsræktar undir ströngu eftirliti.