Faðir Sophiu Cove, 16 ára stúlku frá Flórída sem hefur verið saknað í rúma viku, telur að einhver hafi talið hana á að yfirgefa heimili sitt undir fölsku yfirskini. Sími hennar varð óvirkur aðeins nokkrum klukkustundum eftir að hún sást yfirgefa heimili fjölskyldunnar að næturlagi.
Sophia fór frá heimili sínu í Naples í Flórída aðfaranótt 31. júlí. Richard Cover faðir hennar segir ekkert hafa bent til þess að eitthvað væri að áður en hún hvarf.
„Þess vegna held ég að einhver hafi sannfært hana um að fara undir fölsku yfirskini,“ sagði Richard í samtali við New York Post.
Hann segist telja mögulegt að einhver hafi haft áhrif á dóttur hans og fengið hana til að fara að heiman.
„Ég held að einhver sé með dóttur mína. Það er besta svarið sem ég hef,“ sagði hann.
Sást yfirgefa heimilið með tösku
Sophia sást síðast á upptökum úr öryggismyndavélum við heimili fjölskyldunnar um klukkan 00:45 aðfaranótt 31. júlí. Þar sést hún yfirgefa húsið með tösku.
Að sögn föður hennar hafði hún tekið með sér talsvert af fötum, nýja Nike-skó og sléttujárn.
Um klukkan 6:15 um morguninn heyrði Richard hund Sophiu ýlfra inni í svefnherbergi hennar. Richard bankaði en fékk ekkert svar. Dyrnar voru læstar, sem honum þótti óvenjulegt, og skömmu síðar kom í ljós að Sophia var ekki heima.
Richard vakti þá sambýliskonu sína og þau skoðuðu upptökur úr öryggismyndavélum hússins. Þar sáu þau að Sophia hafði farið út með tösku nokkrum klukkustundum fyrr.
Slökkt á staðsetningardeilingu
Búið var að gera staðsetningarforritið í síma Sophiu óvirkt og slökkt var á símanum. Fjölskyldan hafði flutt til Flórída fimm mánuðum áður. Að sögn Richards var Sophia ánægð með lífið og hlakkaði til að hefja skólagöngu á ný innan tveggja vikna.
Hann telur því ólíklegt að dóttir hans hafi ákveðið upp á eigin spýtur að yfirgefa fjölskylduna og láta ekkert vita af sér.
„Það var ekkert sem benti til þess að hún vildi ekki vera hér. Hún var ánægð þar sem hún bjó og hlakkaði til að fara aftur í skólann eftir nokkrar vikur,“ sagði hann.
Umfangsmikil leit hafin
Yfirvöld í Collier-sýslu hafa samkvæmt bandarískum fjölmiðlum hafið rannsókn á hvarfi Sophiu með aðkomu nokkurra lögreglu- og rannsóknarstofnana.
Faðir hennar hefur jafnframt staðið fyrir umfangsmikilli leit, bæði á samfélagsmiðlum og í nærsamfélaginu, í þeirri von að einhver geti veitt upplýsingar um ferðir hennar eða hvað varð um hana eftir að hún yfirgaf heimilið.
Enn er óljóst hvert Sophia fór eftir að hún sást á öryggismyndavélunum og fjölskylda hennar bíður þess að fá svör við því hvað varð um hana.