Pressan

Vara Spánarfara við – Hættuleg mýflugnaveira breiðist út

Mynd
Frá Spáni. Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Spænsk yfirvöld hafa gefið út svokallaða „rauða viðvörun“ og vara ferðamenn á Costa del Sol svæðinu við. Ástæðan er að þar hafa fundist mýflugur sem geta borið Vestur-Nílar veiruna með sér.

Expressen skýrir frá þessu og segir að flugurnar hafi fundist í bæjunum Fuengirola og Mijas.

Ef fólk smitast eru einkennin eins og væg inflúensueinkenni.

The European Food Safety Authority (EFSA) segir að 80% smitaðra finni ekki fyrir neinum einkennum.

Fimm manns hafa nú þegar greinst með veiruna en engin hefur veikst alvarlega.

Áður hafa tíu manns látist af völdum veirunnar á vinsælum ferðamannastöðum á Spáni.

15 sveitarfélög í Andalúsíu eru skilgreind sem hættusvæði.

Veiran hefur einnig fundist á Ítalíu, Grikklandi og Frakklandi.