Sykursýki 2 er afleiðing af því að líkaminn getur ekki framleitt nægilega mikið insúlín eða þegar insúlínið virkar ekki eins og það á að gera. Þetta veldur því að blóðsykurinn hækkar og það getur haft alvarleg heilsufarsvandamál í för með sér.
Fólk í ofþyngd, með of háan blóðþrýsting, fólk sem lifir kyrrsetulíf eða á nána ættingja sem eru með sjúkdóminn er í aukinni hættu á að fá sykursýki 2.
Breska heilbrigðiskerfið segir að aldur og þjóðernislegur bakgrunnur geti einnig skipt máli hvað þetta varðar.
Margir tengja sykursýki 2 við þorsta, þreytu og tíðar klósettferðir en sjúkdómurinn þróast of hægt og sumir taka ekki eftir neinum einkennum. Af þeim sökum er mælt með því að ef fólk grunar að það sé með sykursýki 2, þá leiti það til læknis. Sérstaklega ef það er í áhættuhópi.
Lítt þekkt einkenni sykursýki 2 er þokusýn. Breska heilbrigðiskerfið segir að of hár blóðsykur geti haft áhrif á augun og valdið vandræðum með sjónina. Express skýrir frá þessu og segir að þetta sé einkenni sem mörgum yfirsjáist.