Vladímír Pútín Rússlandsforseti virðist hafa fengið nýja hugmynd nýlega því hann ákvað að skipa drónastjóra í hernum. Sá heitir Denis Lyamin og mun stýra þeim armi hersins sem einbeitir sér að ómönnuðum vopnum á borð við dróna.
Reuters segir að skipun Lyamin í embættið sé liður í því sem Pútín segi vera „fínpússun“ á skipulagi hersins.
Drónar hafa verið afgerandi vopn í stríðinu í Úkraínu og nota báðar þjóðirnar þá til árása á hina.
Pútín og Lyamin komu fram í beinni sjónvarpsútsendingu og ávarpaði Pútín Lyamin og sagði hann „einn hæfasta sérfræðinginn“ til að sinna þessu verkefni.