Vestrænir herir geta fljótlega staðið frammi fyrir uppgjöri við Moskvu, jafnvel á næstu mánuðum. Þetta segja heimildarmenn innan breskra leyniþjónustustofnana.
Daily Mail og Onet skýra frá þessu og segja að samkvæmt heimildum þá sé Vladímír Pútín að undirbúa sig undir að kanna hversu staðföst nýja breska ríkisstjórnin, undir forystu Andy Burnham, er. Telja leyniþjónustumenn að Pútín hafi í hyggju að nýta sér stöðuna á alþjóðavettvangi og hversu flókin hún er nú.
Rússar eru nú þegar farnir að láta reyna á breska herinn og getu hans nærri Bretlandi. Þeir beindu njósnaskipaflota sínum að svæðinu nærri Ermarsundi sem hafði í för með sér að breski flotinn varð að bregðast við því.
Sérfræðingar segja þessar aðgerðir Rússa vera hluta af víðtækari aðgerðum Rússa til að láta reyna á varnir Vesturlanda og hvernig þau bregðast við.
Heimildarmaður sagði að mikil sannfæring sé innan leyniþjónustustofnanna um að Pútín sé að undirbúa bein átök við NATÓ á næstu mánuðum. Ástæðan sé að Donald Trump er upptekin af Íran og vegna vísbendinga um klofning innan úkraínsku stjórnarinnar.
Vilji Rússa til að taka áhættuna á samstuði við NATÓ er að hluta tilkominn vegna lélegs gengis þeirra í stríðinu í Úkraínu.