Pressan

Sláandi upptaka sýnir meintan morðingja færa lík Lisu

Mynd
Skjáskot/TikTok

Sláandi upptaka úr eftirlitsmyndavél í miðborg Aþenu sýnir meintan morðingja færa tösku sem lögregla telur innihalda lík Elisabeth Jane Ross, yfirleitt þekkt sem Lisa. Upptakan er frá 16. júlí og sýnir hinn 26 ára gamla Sharif Ahmadzai fara með stóra svarta ferðatösku í gegnum miðborg Aþenu í Grikklandi, leið hans endar í yfirgefnu húsi. 

Líkt og Pressan hefur fjallað um hefur málið vakið mikla athygli en Lisa, sem var 38 ára gömul og frá Skotlandi, var að heimsækja vinafólk sitt í Grikklandi. Lík hennar fannst í yfirgefnu húsi ekki langt frá hinni sögufrægu Akrapólishæð. 

Sjá frétt: Umfangsmikil rannsókn hafin eftir óhugnanlegan líkfund skammt frá einum sögufrægasta stað heims

Mynd
Lisa Ross.

Lisa sást síðast á lífi þann 15. júlí þremur dögum áður en lík hennar fannst. Gríska lögreglan hefur tjáð fjölmiðlum að farsími Ross hafi verið notaður eftir lát hennar og raunar allt þar til greint var opinberlega frá því að hún væri sú sem fannst látin í ferðatöskunni. Skilaboð hafi verið send úr símanum bersýnilega til að telja þeim sem fengu skilaboðin send trú um að hún væri enn lifandi.

Sharif hefur nú verið handtekinn og ákærður í tengslum við andlátið. Mun hann hafa játað að færa líkið í ferðatöskunni en neitar að hafa myrt Elizabeth. 

@missingpersonjue CCTV footage of Afghan suspect wheeling suitcase through the St’s of Athens shortly before the body of a Scottish woman was found. Elisabeth Jane Ross, 38, who was also known as Lisa, was found on July 18 by a homeless man who came across the suitcase in an abandoned property in the area of Kypseli, Athens. Sharif Ahmadzai, 26, has been arrested in connection with Lisa’s death and is awaiting formal charges against him. #breakingnews #scottishtiktok #murder #cctv #athens ♬ Silver Hour Etude - Clara Hawkins

„Hann játar að hafa flutt hana í ferðatösku. Lögreglan er með upptökur úr eftirlitsmyndavélum sem sýna hann gera það 16. júlí. Hann hefur líka játað að taka úr 10 þúsund evrur af kortunum hennar. En hann neitar að hafa myrt hana, lögregla tekur það ekki trúanlegt,“ sagði George Kalliakmanis við Guardian. 

Sharif er boxari frá Afghanistan, hann kom sem hælisleitandi til Grikklands árið 2016 og gifti sig bandarískum ríkisborgara 2023. Hann og eiginkona hans, Alaina Hall, aðstoðuðu hælisleitendur í Grikklandi og er talið að hann hafi þekkt Lisu í gegnum störf sín. Alaina grunaði Sharif um leið og Lisa var nafngreind af lögreglu.

Heimildarmenn innan lögreglunnar segja að Sharif haldi því fram að hann hafi fundið Lisu látna í baðkari og það eina sem hann hafi gert var að setja hana í ferðatösku og skilja hana eftir í yfirgefnu húsi. Búist er við að hann mæti fyrir dómara á miðvikudag.