Karl og kona hafa verið handtekin á Tenerife, grunuð um að hafa beitt tveggja ára son sinn ofbeldi inni á veitingastað í borginni Santa Cruz á Tenerife.
Canarian Weekly greinir frá
Atvikið átti sér stað 8. júlí þegar foreldrarnir voru á veitingastað með drengnum. Samkvæmt sjónarvottum, þar á meðal starfsfólki staðarins, á faðirinn að hafa slegið barnið og hrist það harkalega. Hann er jafnframt sakaður um að hafa ítrekað haldið fyrir munn og nef drengsins í nokkurn tíma í senn, til að þagga niður í honum þegar hann grét.
Starfsfólk veitingastaðarins sagði móðurina hvorki hafa reynt að stöðva hegðun föðurins né mótmælt henni. Þvert á móti hafi hún að sögn virkað hvetjandi gagnvart framferði hans.
Lögregla hóf rannsókn eftir að tilkynning barst um málið og tókst að hafa uppi á foreldrunum, sem eru búsett í Murcia á meginlandi Spánar. Lögreglumenn úr barnaverndardeildum lögreglu á Tenerife og í Murcia unnu saman að rannsókninni.
Faðirinn var handtekinn 20. júlí og móðirin daginn eftir. Þau voru síðan leidd fyrir dómara. Lögreglan hefur ekki veitt frekari upplýsingar um líðan drengsins eða hvar hann dvelst nú.