Pressan

Hjón fundust látin á heimili sínu eftir að konan steig fram á TikTok og sakaði manninn um barnaníð

Mynd
Sarah Gilson. Mynd: Facebook

43 ára kona og eiginmaður hennar fundust látin af skotsárum á heimili sínu í Oklahoma í Bandaríkjunum þann 23. Júlí, í máli sem lögregla telur að varði morð og sjálfsvíg. Nokkrum vikum áður hafði konan birt myndband á TikTok þar sem hún sakaði eiginmann sinn um barnaníð.

Lögregla var kölluð á vettvang eftir neyðarsímtal þar sem heyra mátti konu öskra áður en skothvellur kvað við. Neyðarverðir reyndu að hringja til baka án árangurs. Skömmu síðar hringdi barn í neyðarlínuna úr húsi nágranna og sagði stjúpföður sinn hafa skotið móður sína.

Þegar lögreglumenn komu á vettvang fundu þeir hjónin, Sarah Gilson og Jeremiah Shawn Duffey, látin af skotsárum á höfði. Rannsókn bendir til þess að Duffey hafi banað eiginkonu sinni áður en hann svipti sig lífi.

Gilson hafði 11. júlí birt TikTok-myndband þar sem hún sagði að hún væri að undirbúa sig fyrir þann dag þegar Netflix gerði heimildarmynd um „bráðlega fyrrverandi eiginmann sinn,“ en hún hefði komst að því  að hann væri barnaníðingur. Myndbandið vakti gríðarlega athygli og var skoðað meira en 22 milljón sinnum. Hún var með um 78 þúsund fylgjendur á TikTok.

Duffey starfaði sem körfuboltaþjálfari stúlknaliðs. Í júní var hann kærður fyrir að hafa átt snert 15 ára stúlku á óviðeigandi hátt og var hann jafnframt úrskurðaður í nálgunarbann gagnvart eiginkonu sinni og börnum. Er einnig haft eftir Gilson að hann hefði hótað sjálfsvígi og síðan horfið.

Fyrrverandi eiginmaður Gilson sagði við fjölmiðla að hún hefði um árabil verið föst í ofbeldissambandi og að hann hefði ítrekað reynt að fá hana til að fara frá Duffey. 

Aðstandendur lýstu Gilson sem ástríkri móður sem hefði gert allt fyrir börnin sín, á Gofundme-síðu sem sett var upp til stuðnings eftirlifandi börnum hennar. 

Einnig er fjallað um málið hér