Pressan

Hann játaði ein umtöluðustu morð síðari tíma – Nú hefur hann dregið játninguna til baka

Mynd
Bryan Kohberger.

Bryan Kohberger varð andlit hreinnar illsku eftir að hann játaði á síðasta ári að hafa stungið fjóra unga námsmenn til bana í Idaho í Bandaríkjunum. Nýlega dró hann játningu sína til baka og eins og gefur að skilja eru fjölskyldur fórnarlambanna allt annað en sáttar.

Það voru engin ummerki um innbrot. Engum skotum hafði verið hleypt af. Ekkert þjófavarnarkerfi hafði farið í gang.

Það sem blasti við voru lík fjögurra ungra námsmanna sem höfðu farið í rúmið á laugardagskvöldi. Vinir þeirra fundu þau með fjölda stungusára daginn eftir.

Morðin voru framin í háskólabænum Mosvow í Idaho og voru lengi vel eitt umtalaðasta sakamál landsins. Nú er málið komið í hámæli á nýjan leik eftir að Kohberger dró játningu sína til baka.

Á síðasta ári játaði hann að hafa myrt fjórmenningana og var dæmdur í fjórfalt lífstíðarfangelsi. Ekki var annað að sjá en að málinu væri lokið.

En nú hefur Kohberger rifið málið upp á nýjan leik með því að draga játninguna til baka. Hann segist vera saklaus og vill að málið verði tekið fyrir dóm á nýjan leik.

Fjölskyldur fórnarlambanna eru allt annað en sáttar og segja að með þessu beinist athyglin nú að Kohberger í staðinn fyrir að ungmennunum fjórum sem létust áður en lífið var hafið að alvöru.

Morðin

Það var aðfaranótt 13. nóvember 2022 sem Kohberger braust inn í hús nærri Idaho háskóla í háskólabænum Moscow.

Þar stakk hann Madison Mogen, Kaylee Goncalves, Xana Kernodle og Ethan Chapin til bana. Tveir aðrir íbúar í húsinu sluppu lifandi.

Mynd

         Fórnarlömb Kohberger.

Milljónir Bandaríkjamanna fylgdust með fréttum af rannsókn málsins næstu vikurnar en henni miðaði lítt í upphafi.

Sex vikum síðar var Kohberger handtekinn á heimili sínu í Pennsylvania. Hann stundaði doktorsnám í afbrotafræði við Washington State háskólann sem er aðeins í klukkustundar akstursfjarlægð frá morðvettvanginum.

Málið varð fljótt eitt umtalaðasta sakamál síðari tíma í Bandaríkjunum og er þó af nægu að taka á þessu sviði. Milljónir fylgdust með rannsókninni og kenningar um morðingjann grasseruðu á samfélagsmiðlum og í true-crime hlaðvörpum.

Handtakan létti á fólki í nærsamfélaginu en að sögn New York Times er því enn ósvarað af hverju ungmennin voru myrt.

Eftir því sem tíminn leið bættust sífellt fleiri sönnunargögn við. Erfðaefni úr Kohberger fannst á hnífshulstri, sem var skilið eftir í herbergi þar sem tvö fórnarlömb fundust. Lögreglan komst einnig að því að Kohberger hafði keypt samskonar hníf hjá netverslun Amazon nokkrum mánuðum fyrir morðin.

Á upptökum úr eftirlitsmyndavélum sást bíllinn hans á svæðinu á morðnóttinni og síminn hans var einnig á svæðinu þessa nótt en einnig sýndu símagögn að það var slökkt á honum þegar morðin voru framin.

Með því að játa morðin komst Kohberger hjá því að hljóta dauðadóm.