Pressan

„Ég hef gist á hundruðum hótela í 50 löndum - þú ættir alltaf að fara yfir þessa hluti í herberginu“

Mynd

Fyrrverandi hótelstarfsmaður hefur gefið út nokkrar tillögur um hvað hótelgestir ættu að skoða á herberginu. 

YouTube-notandinn Megan hefur gist á hundruðum hótela í 50 löndum á síðasta áratug, auk þess að hafa unnið á einu þeirra sjálf í eitt ár, og á þeim tíma hefur hún kynnst fjölda „hryllingssagna“ sem hafa leitt til þess að hún deilir viðvörunarorðum með öðrum sem gista á hótelum.

Segist hún hafa heyrt ýmsar sögur frá gestum, þar á meðal að herbergjahurðir þeirra lokuðust ekki alveg, salerni sturtuðu ekki niður og aðrir skildu herbergi sín eftir í „ótrúlega hræðilegu“ ástandi. Þetta hvatti hana til að búa til gátlista sem hún fer í gegnum í hvert skipti sem hún gistir á hóteli, áður en hún pakkar en hún tekur upp úr töskunni. Hún meira að segja heldur hurðinni opinni með ferðatöskunni sinni meðan hún skoðar yfir herbergið.

Baðherbergisskoðun Megan

„Þú ættir að kíkja á baðherbergið, opna skápinn, líta á bak við gluggatjöldin, undir rúmið og stíga út á svalirnar ef einhverjar eru,“ ráðleggur Megan í myndbandi sem deilt var á YouTube. Megan ráðleggur að skoða herbergið til að skoða hvort það sé einhver„augljós óreiða eða eitthvað sem er í ólagi og fær þig til að vilja skipta um herbergi“.

Í einni tilviki bað Megan um að skipta um herbergi eftir að hafa séð óhreinindi í kringum klósettið og fullt af hári fast í sturtu og baðkari. Og enginn vill vera á hótelherbergi þar sem klósettið eða sturtan virkar ekki.

„Teljið handklæðin, teljið snyrtivörurnar og gangið úr skugga um að allt sé tilbúið,“ ráðleggur Megan og tekur fram að það sé yfirleitt auðveldara að fá bætt úr í upphafi dvalarinnar heldur en um miðja dvölina.

Næst á dagskrá? Að setja ferðatöskuna í baðkarið til að skoða hvort veggjalús (e. Bed bugs) séu í restinni af herberginu, Megan segir að baðkarið sé erfiðasti staðurinn fyrir þær að ná til.

Restin af gátlista Megan áður en þú tekur upp úr töskunni

Til að athuga rúmfötin þín almennilega þarftu að draga þau til baka og „skoða saumana, hornin og kanta dýnunnar í leit að rauðbrúnum skordýrum, litlum dökkum blettum sem líta út eins og svartur pipar eða þunnum húðflögum“.

Þú getur líka athugað brúnir höfuðgaflsins með vasaljósi símans þíns tog ekki gleyma bilinu á milli höfuðgaflsins og dýnunnar.

Ef eitthvað lítur „grunsamlega“ út er miklu auðveldara að hringja í móttökuna og biðja um herbergisskipti,  eða skipta alveg um hótel, allt eftir því hversu slæmt ástandið er.

Ef þú finnur veggjalús ráðleggur Megan þér að fara í herbergi á annarri hæð, ekki bara í herbergið við hliðina á því sem þú fékkst fyrst, því líkur eru á veggjalús sé líka þar.

Það verður að vera tryggt að hægt sé að læsa hurðinni og að læsingarnar virki fyrir öryggi þitt, þar á meðal lásinn og öryggislásinn. Ekki gleyma að prófa glugga- og svalalæsingarnar líka og hvort gægjugatið virki. Megan ráðleggur að setja miða fyrir það að innan til að loka fyrir útsýni.

Fimmta ráð hennar er ógnvænlegast: að leita að földum myndavélum í herberginu.

Megan ráðleggur að draga fyrir gluggatjöldin, dimma ljósin og nota vasaljós símans til að „gæta að litlum endurskinsblæ“. Reykskynjarar, vekjaraklukkur, loftræstiop, lampar og „allir aðrir hlutir sem beinast að rúminu eða baðherberginu“ eru lykilatriði til að skoða.

„Verið líka tortryggin gagnvart USB hleðslutækjum eða handahófskenndum raftækjum sem hafa verið skilin eftir tengd,“ bætir Megan við og bendir á að taka mynd af öllu sem þið finnið og „fara út“ strax til að hringja í lögregluna.

Sjötta atriðið er frekar mikilvægt. Megan leggur áherslu á mikilvægi þess að vita að neyðarútgangurinn sé aðgengilegur ef upp kemur atvik eins og eldur, ekki bara að skoða rýmingarveggspjaldið sem venjulega er aftan á hurðinni á herberginu þínu, heldur einnig að ganga að neyðarútganginum og vita hvar hann er.

Sjöunda atriðið er að sótthreinsa fjarstýringuna fyrir sjónvarpið, „óhreinasta hlutinn“ á hóteli, jafnvel að setja sturtuhettu yfir fjarstýringuna til að auka vörn. 

Áttunda atriðið er að athuga hvort kaffivélin, ísskápur og slíkt sé hreint, og Megan fullvissar að það sé „venjuleg“ venja að biðja um ný tæki ef óskað er eftir því. Níunda ráðið  tengist loftkælingunni og hvort hún skrölti eða gefi frá sér einhverjar undarlega lyktir, ásamt straujárninu í herberginu.

Næstsíðast er að athuga hvort herbergissíminn hafi tón ef neyðarástand kemur upp og hvort vekjaraklukkan sé til staðar, til að tryggja að þú vaknir ekki óþægilega. Og að lokum, taktu ljósmynd af herberginu. „Komdu fram við hótelherbergi eins og bílaleigubíl,“ ráðleggur Megan. Þannig verður þú ekki kennt um bletti, hvað skortir í minibarinn eða neitt annað.