Fangelsisdómar hafa verið kveðnir upp yfir móður eins árs drengs og kærasta hennar, í San Bernardino sýslu í Kaliforníu. Parið var sakfellt vegna dauða Henry Wheatley-Brown, sem lést í október 2023 eftir að hafa orðið fyrir alvarlegum brunasárum af völdum sjóðheits vatns.
Samkvæmt saksóknara setti Sergio Mena, kærasti móðurinnar, drenginn í baðkar fullt af sjóðheitu vatni þann 30. september 2023. Hann yfirgaf síðan barnið til að fara að neyta metamfetamíns. Þegar Samantha Garver, móðir drengsins, kom heim síðar um kvöldið sagði Mena henni frá brunasárunum. Í stað þess að leita tafarlaust læknisaðstoðar báru þau smyrsli á sár barnsins sem fæst án lyfseðils og biðu með að kalla eftir hjálp.
Daginn eftir hringdu þau loks í neyðarlínuna og sögðu drenginn anda mjög grunnt. Er viðbragðsaðilar komu á vettvang var drengurinn án lífsmarka og líkami hans kaldur viðkomu. Krufning leiddi í ljós að hann hafði látist af brunasárunum og var dauðsfallið flokkað sem manndráp.
Rannsókn sýndi jafnframt að drengurinn hafði lengi sætt ofbeldi. Auk alvarlegra brunasára fundust marblettir, gróandi beinbrot og blæðingar í augum sem bentu til endurtekinna meiðsla. Yfirvöld töldu að móðir drengsins hefði vitað af áverkum hans.
Málið leiddi einnig í ljós að fjölskyldan hafði áður komið við sögu barnaverndaryfirvalda og að Garver hafði áður verið sökuð um ofbeldi gegn barni. Hún var meðal annars dæmd árið 2013 fyrir að hafa valdið öðru barni brunasárum.
Dómurinn féll 28. júlí. Mena hlaut 21 árs fangelsisdóm fyrir morð af annarri gráðu og stórfellt ofbeldi gegn barni sem leiddi til alvarlegs líkamstjóns. Garver var dæmd í 14 ára fangelsi fyrir manndráp og alvarlegt ofbeldi gegn barni.
Sjá nánar hér.