Pressan

Unglingur stakk eldri konu fyrir utan verslunarmiðstöð af því hann vildi drepa einhvern þann daginn

Mynd
Rachell Summers. Mynd: GoFundMe

Lögregla í borginni Capitola í Kaliforníu rannsakar hnífaárás sem kostaði 73 ára konu lífið og telur lögregla að um hafi verið að ræða algjörlega handahófskenndan verknað. Brotaþoli, Rachell Summers, hafði farið í Capitola-verslunarmiðstöðina 20. júlí til að sækja launaávísun. Hún starfaði sem verslunarstjóri hjá Art of Santa Cruz, verslun sem selur listmuni eftir listafólk úr heimabyggðinni.

Þegar Summers gekk út úr verslunarmiðstöðinni var hún stungin ítrekað með hnífi skammt frá útganginum. Lögreglumenn sem komu á vettvang hófu endurlífgunartilraunir þar til sjúkraflutningamenn komu, en ekki tókst að bjarga lífi hennar og hún var úrskurðuð látin á staðnum.

Skömmu síðar handtók lögregla 19 ára háskólanema, Tyler Leibelt, nálægt verslunarmiðstöðinni, og veitti hann ekki mótspyrnu. Samkvæmt gögnum málsins sagðist hann ekki hafa þekkt Summers en hefði ákveðið að drepa einhvern þann dag. Hann hafi íhugað fleiri einstaklinga áður en hann valdi Summers af handahófi.

Dómskjöl sýna að Leibelt á sakaferil að baki. Í nóvember á síðasta ári var gefið út sérstakt bann gegn því að hann gæti keypt skotvopn, meðal annars vegna þess að hann hafði lýst yfir vilja til að valda fjöldadauða. Einnig hafði hann skrifað kveðjubréf þar sem hann sagðist vilja drepa sem flesta og hafði áður verið sakaður um ofbeldisbrot, þar á meðal alvarlegt kynferðisbrot gegn fötluðum, ólögráða einstaklingi.

Lögregla segir Leibelt hafa keypt tvo hnífa í verslun skammt frá verslunarmiðstöðinni rétt áður en árásin var framin. Hann hefur verið ákærður fyrir morð af yfirlögðu ráði og er í haldi án möguleika á lausn gegn tryggingu. Rannsókn málsins stendur enn yfir.

True Crime News greindi frá en einnig er fjallað um málið á Gofundme-síðu sem sett var upp til stuðnings barnabarni Summers.