Óhugnanlegt myndband sýnir augnablikið þegar móðir notaði bensíndælu til að verjast brjáluðum, byssuvopnuðum manni sem reyndi að ræna barni hennar á bensínstöð í Georgíu í Bandaríkjunum.
Upptaka úr eftirlitsmyndavél sýnir þegar Jerahn Tucker nálgast bíl fjölskyldunnar við Shell bensínstöð í Marietta rétt eftir miðnætti í síðustu viku.
Myndskeiðið sýnir Tucker, sem var ber að ofan og berfættur, ganga af vettvangi og snúa aftur til að kíkja inn í bílinn sem stóð við bensíndæluna.Barn inni í bílnum opnaði bílhurðina og hljóp í kringum bílinn til að flýja frá Tucker sem elti barnið.
Á einum tímapunkti opnaði Tucker afturhurðina á bílnum, þar sem annað barn sat, á meðan eldri drengurinn hélt áfram að hlaupa í hringi. Skelfd móðirin stökk þá til aðgerða, greip bensíndælu til að ýta Tucker frá sér og aðskilja hann frá syni sínum sem gaf barninu tækifæri til að komast aftur inn í bílinn.
Móðirin, sem ekki hefur verið nafngreind, sagði síðar rannsóknarlögreglumönnum að Tucker hefði verið með byssu.
Tvö vitni komu einnig til aðstoðar, að sögn lögreglu.
Tucker ók á brott af vettvangi en lögreglumenn eltu hann fljótt uppi og sögðust einnig hafa fundið THC-rafeindasígarettu í bíl hans.
„Aðgerðir móðurinnar og allra á vettvangi, hæfni þeirra til að halda ró sinni undir álagi og ýta Tucker frá sér, fá hann frá börnunum, ná í okkur svo við gætum komist á svæðið, gerðu okkur kleift að draga þennan einstakling til ábyrgðar,“ sagði Charles McPhilamy, upplýsingafulltrúi lögreglunnar í Marietta, við fréttamiðla.
Tucker var settur í fangelsi Cobb-sýslu fyrir margvíslega ákæruliði, þar á meðal tilraun til mannráns og að skapa ótta við líkamsárás.
Bensínstöðvarstjórinn sagði einnig að hann hefði rekið Tucker af eigninni ítrekað áður en meint mannránstilraun átti sér stað.
„Milljón dollara spurningin sem allir sem allir sem horfa á munu spyrja sig er: Hvers vegna gerðist þetta? Og við vitum ekki svarið,“ sagði McPhilamy.