Fyrrverandi lögreglukona í London, Lauren Evans, hefur fengið fangelsisdóm sinn tvöfaldaðan eftir að hafa logið því upp á samstarfsmann sinn að hann hefði beitt hana kynferðisofbeldi. Áfrýjunardómstóll taldi upphaflega dóminn, sem var 12 mánaða fangelsi, of vægan og hækkaði hann í tveggja ára fangelsi. Evans hafði þegar verið látin laus en var gert að gefa sig fram á lögreglustöð til að afplána þann hluta refsingarinnar sem eftir stendur.
Málið á rætur að rekja til marsmánaðar árið 2023 þegar Evans var á leið til vinnu í suðurhluta London. Hún hélt því fram að óeinkennisklæddur lögreglumaður hefði stöðvað sig og framkvæmt óviðeigandi leit á sér. Hún nafngreindi meintan geranda sem „Watson“.
Fyrir hreina tilviljun var lögreglumaður að nafni Alex Watson í akstri á svæðinu í ómerktum lögreglubíl á sama tíma. Þótt Evans hefði aldrei hitt hann áður féll strax á hann grunur, hann var handtekinn og vistaður í fangageymslu í 23 klukkustundir. Hann var jafnframt leystur frá störfum á meðan rannsókn stóð yfir.
Rannsókn málsins var umfangsmikil. Um 30 lögreglumenn unnu að henni og talið er að hún hafi tekið um 1.500 vinnustundir. Með gögnum úr eftirlitsmyndavélum og myndum úr númeraplötulesurum tókst að sýna fram á að atburðurinn sem Evans lýsti hefði aldrei átt sér stað.
Áður en hún mætti til vinnu hafði Evans sent yfirmönnum sínum skilaboð þar sem hún sagðist nýlega hafa verið stöðvuð af lögreglu. Þegar hún kom á vinnustað endurtók hún sömu sögu, þrátt fyrir að hafa mætt á réttum tíma.
Evans var sakfelld fyrir að reyna að villa um fyrir réttvísinni og rekin úr lögreglunni án fyrirvara í janúar. Dómarinn sagði við upphaflega dómsuppkvaðningu að einföld lygi, sem líklega hefði tengst ótta hennar við að mæta of seint til vinnu, hefði haft gríðarlegar afleiðingar.
Alex Watson sagði að handtaka hans, sem fór fram fyrir framan eiginkonu hans og börn á heimili fjölskyldunnar, hefði haft svo alvarleg áhrif að eiginkona hans sagði síðar upp starfi sínu hjá lögreglunni. Yfirmaður rannsóknarinnar sagði málið jafnframt grafa undan mikilvægu starfi við að styðja raunverulega þolendur kynferðisbrota.
Sjá nánar hér.