Pressan

Einn eftirlýstasti maður Ítalíu handtekinn á Tenerife

Mynd
Mynd: Policia Nacional

Maður sem var á lista yfir eftirlýstustu strokumenn Ítalíu hefur verið handtekinn í Los Cristianos, í suðurhluta Tenerife, á grundvelli evrópskrar handtökuskipunar sem ítölsk yfirvöld gáfu út. Handtakan fór fram 13. júlí en lögregla greindi ekki frá henni fyrr en í dag, 29. júlí.

Canarian Weekly greinir frá þessu.

Maðurinn er eftirlýstur vegna fjölda brota sem hann er sakaður um að hafa framið á árunum 2018 og 2019. Hann á yfir höfði sér tæplega sex ára fangelsisdóm á Ítalíu.

Samkvæmt spænsku ríkislögreglunni er maðurinn sakaður um að hafa ólöglega haft undir höndum, borið og skotið af bæði skammbyssu og riffli á almannafæri. Rannsókn bendir einnig til þess að sömu vopn hafi síðar verið notuð við önnur afbrot.

Auk þess er maðurinn grunaður um að hafa komið að framleiðslu og dreifingu falsaðra peningaseðla og tekið þátt í umfangsmiklum svikum sem tengast mannaráðningum. Yfirvöld telja að skipulögð glæpasamtök hafi stofnað sýndarfyrirtæki og skráð tilbúna starfsmenn til að blekkja ítalska almannatryggingakerfið. Með fölsuðum ráðningum og uppsögnum hafi hópurinn fengið atvinnuleysisbætur greiddar til einstaklinga sem áttu engan rétt á þeim og þannig valdið ríkinu verulegu fjárhagslegu tjóni.

Eftir handtökuna var maðurinn leiddur fyrir dómara sem úrskurðaði hann í gæsluvarðhald á meðan unnið er að framsali hans til Ítalíu. Spænska lögreglan segir upplýsingar frá almenningi skipta miklu máli við að hafa uppi á alþjóðlega eftirlýstum glæpamönnum sem leynast víða um Spán.