Pressan

Ver ákvörðunina að raka karlmenn allsnakin: „Ég er ekki að gera neitt rangt“

Mynd
Skjáskot/Instagram

Brasilíska hárgreiðslukonan Daniella Motta hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir að bjóða upp á rakaraþjónustu fyrir karlmenn þar sem hún sinnir starfinu allsnakin. 

Daniella starfar í Florianopolis í Brasilíu þar sem hún rukkar þrjú þúsund brasilískar real fyrir klippinguna eða hátt í 75 þúsund krónur. Daniella starfaði áður sem klámmyndaleikkona áður en hún sneri sér að hársnyrtiiðn svarar gagnrýnendum sínum á Instagram og segir að hún sjái þetta ekki sem klám heldur sem list.

„Ég skil að þetta vekur áhuga fólks. Ég er ekki að gera neitt rangt. Ég klippi bara þá sem eiga bókaðan tíma, það eru reglur og virðing,“ segir hún. „Nekt þarf ekki að vera eitthvað til að skammast sín fyrir. Fyrir mér er nekt list, frelsi og leið til að afla mér tekna.“

Mynd

Hún segir að nokkrir nágrannar hafi kom til sín að kvarta. „Þeim líkaði ekki við þessa hugmynd og sögðu mér að þetta væri ekki við hæfi í hverfinu þeirra.“

Er það hennar draumur að stækka við sig og bæta við starfsfólki. „Mig langar að geta boðið upp á fleiri tegundir af snyrtingu fyrir karlmenn.“