Pressan

Svona oft þarftu að standa upp úr stólnum til að minnka líkurnar á krabbameini

Mynd
Ætli hún sé búin að sitja lengi?Mynd:Getty

Vísindamenn við Glasgow háskóla rannsökuðu tengsl langvarandi kyrrsetu og hættunnar á að látast af völdum krabbameins. Þeir studdust við gögn um rúmlega 91.000 fullorðna úr UK Biobank. Þátttakendurnir báru skráningartæki sem skráðu það sem þeir gerðu og var að meðaltali fylgst með þeim í 12 ár.

Rannsóknin hefur verið birt í vísindaritinu PlosMedicine. Einnig var rannsakað hvað áhrif það hafði að gera hlé á kyrrsetunni til að hreyfa sig.

Rannsóknin leiddi í ljós að létt hreyfing á borð við göngu, uppvask eða heimilisstörf dró úr hættunni á að fá krabbamein samanborið við að hreyfa sig ekki.

Fram kemur að einnar klukkustundar létt hreyfing á dag, í staðinn fyrir að sitja kyrr, dró úr líkunum á að deyja úr krabbameini um 12%.

Kevin McConway, hjá Open University, kom ekki að gerð rannsóknarinnar en í samtali við The Guardian sagði hann að niðurstöðurnar séu áhugaverðar. Hann lagði einnig áherslu á að það sé þörf á frekari rannsóknum á þessu sviði.

Rannsóknin bendir sérstaklega á að fólk, sem sat eða lá kyrrt í 30 mínútur eða lengur í einu, var í meiri hættu á að deyja af völdum krabbameins en fólk sem rauf kyrrstöðuna oft.

Vísindamennirnir segja að hættan á að deyja af völdum krabbameins aukist um 10% fyrir hverja klukkustund með samhangandi hreyfingarleysi.

Þeir leggja einnig áherslu á að rannsóknin sýni aðeins fram á tengsl og geti ekki sannað að langt hreyfingarleysi sé bein orsök.