Kvöldmaturinn er yfirleitt sú máltíð sem maður hefur mesta stjórn á af því að hann er yfirleitt borðaður heima. Það veitir fólki meiri möguleika á að velja rétt.
15min skýrir frá þessu og segir að það skipti líka máli hvenær kvöldmaturinn er borðaður. Ef maður borðar hann of seint, þá getur það haft áhrif á náttúrulegan rytma líkamans og hormóna sem stýra svengd og orku.
Margar rannsóknir hafa sýnt fram á að það að borða kvöldmatinn seint getur aukið líkurnar á þyngdaraukningu. Þess vegna er mælt með því að kvöldmaturinn sé borðaður tveimur til fjórum klukkustundum fyrir háttatímann.
Samsetning máltíðarinnar er síðan lykilatriði. Matur sem er prótínríkur og inniheldur holla fitu gerir að verkum að mettunartilfinningin varir lengi.
Kolvetni ættu að vera af grófu gerðinni og gjarnan í bland við trefjar. Það kemur sér vel fyrir meltinguna og heldur blóðsykrinum í jafnvægi.
Það skiptir einnig máli hvernig maturinn er eldaður. Bakstur, grill eða gufusoðinn matur er betri kostur en matur sem er steiktur í olíu því þá eru hitaeiningarnar færri.
15min segir að sérfræðingar bendi á að einn réttur sé sérstaklega góður ef maður vill léttast. Í honum eru mörg mikilvæg næringarefni.
Í réttinum eru lax, kínóa og aspas. Þessi samsetning tryggir prótín, holla fitu, trefjar og góð kolvetni sem metta og styrkja líkamann.