Margir reikna með að veikindum sé lokið um leið og sjúkdómseinkennin hverfa. En þetta getur verið öðruvísi í raunveruleikanum.
Margar veirusýkingar geta valdið síðbúnum einkennum sem koma fram löngu eftir að sjúklingur hefur náð heilsu á nýjan leik.
Ný sænsk rannsókn leiddi í ljós að væg COVID-19 veikindi geta tengst langvarandi augnvandamálum.
Það voru vísindamenn við Linköping háskólann sem gerðu rannsóknina sem hefur verið birt í vísindaritinu Nature Communications.
Vísindamennirnir komust að því að tengsl eru á milli vægra COVID-19 veikinda og alvarlegra augnvandamála.
Vísindamennirnir rannsökuðu 100 manns og höfðu allir þátttakendurnir fengið vægt COVID-19. Í kjölfar veikindanna byrjaði fólkið að glíma við sjóntruflanir, augnverki, ljósfælni og augnþreytu.
Hjá þriðja hverjum voru vandamálin svo alvarleg að þeir urðu að taka sér veikindafrí.
Margir af þátttakendunum fóru til augnlækna en hefðbundnar rannsóknir sýndu engin merki um sjúkdóma.
Það var ekki fyrr en vísindamennirnir notuðu sérhæfðar rannsóknaraðferðir sem skýringar fóru að finnast.
Þeir rannsökuðu meðal annars prótín í tárum þátttakendanna. Þar fundu þeir meri um langvarandi bólgur og áhrif á þær taugar sem stjórna margvíslegri starfsemi augnanna.