Takið mat og drykk með þegar þið farið á ströndina. Þetta er hvatningin frá Antonio Decaro, sem er héraðsstjóri í Apulien, sem er í suðurhluta Ítalíu.
Metro skýrir frá þessu og segir að héraðsstjórinn hafi birt myndband á Facebook þar sem hann hvetur bæði heimafólk og ferðamenn til að taka mat og drykk með á ströndina.
Þetta virðist nú kannski ansi saklaust en á Ítalíu er þetta orðið að töluverðu hitamáli því margar strendur eru í einkaeigu og barir og veitingastaðir taka sífellt meira pláss á mörgum ítölskum ströndum.
Þetta þýðir að strandgestir geta þurft að greiða fyrir sólbekki, sólhlífar, mat og drykk.
Þessi einkavæðing stranda hefur kynt undir umræðu um aðgengi almennings að ströndum landsins.
Strandferðir eru orðnar að lúxusafþreyingu fyrir suma og sagði Alexandra Dubakova, hjá ferðaskrifstofunni FreeTour, að á vinsælum ströndum í Apulien sé algengt að það kosti 70 til 90 evrur að leigja sólhlíf og tvo sólbekki í ágúst. Þegar matur og bílastæði bætist við, þá geti einn dagur á ströndinni kostað vel yfir 100 evrur.
Það er einmitt þetta sem héraðsstjórinn vill takast á við.