Pressan

Hylltur sem hetja eftir að hann bjargaði foreldrum sínum frá drukknun – Síðan tók málið nýja stefnu

Mynd
Stephen Seddon með foreldrum sínum eftir að hann bjargaði þeim.

Í mars 2012 var Bretinn Stephen Seddon hylltur sem hetja eftir að hafa að sögn fengið fyrir hjartað þegar hann ók BMW-bifreið. Bifreiðin lenti út í Bridgewater Canal. Með honum í för voru foreldrar hans og frændi á unglingsaldri.

Sem betur fer voru vitni að þessu og þutu þau að vettvangi og sáu Stephen bjarga fólkinu úr bílnum og þar með lífi þeirra. En „slysið“ var ekki slys því Stephen hafði vísvitandi ekið bílnum út í Bridgewater Canal. Ef vitnin hefðu ekki verið til staðar hefði útkoman líklega orðið önnur.

Þegar þetta gerðist var Stephen atvinnulaus, skuldugur upp fyrir haus og var sífellt að reyna að fá peninga lánaða. Foreldrar hans höfðu lánað honum háar fjárhæðir.

En þetta var ekki nóg fyrir hann. Foreldrar hans, Bob og Patricia, áttu hús og jörð sem voru mörg hundruð þúsunda punda virði og var Stephen einkaerfingi. En vandinn sem hann stóð frammi fyrir, að hans mati, var að foreldrar hans stóðu í vegi fyrir að hann fengi peningana. Hann sá aðeins eina lausn á þessu, að foreldrar hans myndu deyja.

En honum mistókst að bana þeim í þetta sinn en fjórum mánuðum síðar tókst honum ætlunarverk sitt.

Þá fannst Patricia látin á ganginum á heimili fjölskyldunnar, hún hafði verið skotin. Bob fannst látinn í stofusófanum, hann hafði verið skotinn með afsagaðri haglabyssu sem lá í kjöltu hans.

Stephen hafði sett upp sviðsmynd sem átti að sannfæra lögregluna um að faðir hans hefði skotið móður hans og síðan tekið eigið líf.  En rannsóknin leiddi í ljós að það var algjörlega útilokað að Bob hefði getað skotið sjálfan sig. Fyrir það fyrsta hafði skotinu verið hleypt af of langt frá líkama hans. Í öðru lagi hafði byssunni verið beint niður á við þegar skotinu var hleypt af. Í þriðja lagi var ekkert á vettvangi sem studdi þá útgáfu sem Stephen hafði reynt að sviðsetja.

Stephen var handtekinn og síðar fundinn sekur um að hafa myrt foreldra sína. Hann var dæmdur í ævilangt fangelsi með möguleika á reynslulausn eftir að hafa setið í fangelsi í 40 ár. Hann verður þá á áttræðisaldri.