Pressan

Hver var konan sem fannst í Dal dauðans?

Mynd
Frá vettvangi eftir að líkið fannst.

Þann 29. nóvember 1970 voru maður og tvær dætur hans á ferð í Ísdalnum, sem er nærri Bergen í Noregi. Þetta er fjalllendi sem heimamenn kalla Dal dauðans.

Fólkið fann lík af konu og var það að hluta brunnið. Konan var ekki með neitt á sér sem gat hjálpað til við að bera kennsl á hana. Öll merki höfðu verið klippt úr fötunum. Merkið á skónum hafði verið slípað niður þannig að ekki var hægt að lesa í hvað það var.

Á lestarstöðinni fann lögreglan töskurnar hennar. Í þeim voru hárkollur, fölsuð vegabréf, peningar frá mörgum löndum og minnisbók með handskrifuðum athugasemdum.

Vitni sögðu konuna hafa verið fágaða og að hún hafi talað mörg tungumál, þar á meðal frönsku, þýsku, ensku og flæmsku reiprennandi. Hún hafði hafði búið á að minnsta kosti 8 hótelum og skráð sig inn undir mismunandi nafni á þeim öllum.

Margar kenningar hafa verið settar fram um konuna. Sú útbreiddasta er að hún hafi verið njósnari í kalda stríðinu og hafi hugsanlega tengst leynilegum tilraunum Norðmanna með Penguin-flugskeyti en þær fóru fram á svæðinu, þar sem líkið fannst, á sama tíma.

Aðrar kenningar ganga út á að konan hafi verið félagi í glæpagengi eða að um persónulega harmleik hafi verið að ræða.

Með nútímarannsóknaraðferðum, bæði DNA-rannsóknum og samsætugreinginu á tönnum hennar, hefur verið sýnt fram á að konan ólst líklega upp á landamærasvæðinu á milli Frakklands og Þýskalands í síðari heimsstyrjöldinni.

Enn er ekki vitað hver konan var og málið er því óleyst.