Pressan

Gátlisti fyrir fríið – Þessu gleyma margir þegar þeir fara í frí

Mynd
Það er margt sem þarf að muna eftir í tengslum við sumarfríið.

Margir eru farnir í sumarfrí en aðrir eiga það enn til góða. Það er að mörgu að hyggja ef fara á í ferðalag, margt sem þarf að muna eftir að pakka niður og gera.

Samkvæmt samantekt danska tryggingafélagsins Gjensidige og TEKNIQ þá eru það nokkur atriði sem margir gleyma þegar farið er í frí.

Taktu það úr sambandi sem þarf ekki að vera í sambandi – Þetta snýst minnst um rafmagnsreikninginn, heldur meira um eldhættu. Eitt rafmagnstæki eyðir kannski ekki svo miklu en þegar þau eru orðin mörg, þá safnast þetta saman og eldhættan vex. Það á auðvitað að láta ísskápinn, frystinn, Internetbeininn og þjófavarnarkerfið vera í sambandi. Annað má taka úr sambandi.

Uppfærðu Internetbeininn og einstaka tæki – Uppfærslur á raftækjum og forritum loka þeim öryggisgötum sem eru opin. Netöryggisstofnun ESB; ENISA, mælir með því að stýrikerfi, forrit og vírusvarnir séu uppfærð og þetta á einnig við um forritin sem stýra snjall-lampanum og dyrasímanum.

Taktu afrit og virkjaðu staðsetningu – Ef síminn hverfur þá glatast myndir og aðgangsorð. Þess vegna er mikilvægt að kveikja á staðsetningarforrit hans.

Íhugaðu að fá þér eSIM eða reikiáskrift – Það getur verið dýrt að nota farsímann erlendis og því er snjallt að fá sér eSIM eða reikiáskrift.