Stjörnur, plánetur, svarthol, geimstöð, gervihnettir og sykur! Þetta eru allt hlutir sem eru þarna úti í hinum óendanlega stóra alheimi.
Stjörnufræðingar fundu nýlega sykur úti í geimnum. CNN skýrir frá þessu og segir að hér sé um sykurtegundina erythrulose, sem er meðal annars að finna í hindberjum, að ræða.
Sykurinn fannst í skýjum af geimryki og gasi nærri miðju Vetrarbrautarinnar. Það voru spænskir stjörnufræðingar sem gerðu þessa uppgötvun.
Í fréttatilkynningu, sem þeir sendu frá sér, segja þeir að þessi uppgötvun hafi komið þeim á óvart.
Þetta er ekki bara óvænt uppgötvun heldur opnar hún fyrir bjartsýni um að aðrar sameindir, sem eru mikilvægar fyrir uppruna lífsins, sé að finna úti í geimnum.
Vísindamenn hafa lengi velt vöngum yfir hvernig sykursameindir urðu til hér á jörðinni. Sykurtegundir hafa áður fundist á loftsteinum og hefur það bent til að hugsanlega megi rekja uppruna sumra sykurtegunda út í geim.