Þann 8. júní síðastliðinn var Larry Dean Brown, 79 ára, handtekinn í Colorado í Bandaríkjunum. Hann er grunaður um að hafa myrt flugfreyju árið 1981. Það var flaska af grillsósu sem varð honum að falli.
Það var þann 13. febrúar 1981 sem Beverly Bruneau, 35 ára, flugfreyja var myrt á heimili sínu í Grapevine í Texas. Hún hafði verið kyrkt. Talið er að Brown hafi myrt hana vegna ágreinings um fjármál. Bruneau var besta vinkona eiginkonu Brown. Þær störfuðu báðar sem flugfreyjur hjá Braniff Airlines.
Lögreglan handtók Brown eftir að hún komst yfir DNA úr honum eftir að lögreglumenn tóku flösku af grillsósu og gosdrykkjadósir úr ruslatunnunni hans. DNA-rannsókn sýndi að það var DNA úr Brown sem fannst á fatnaði Bruneau en hann hafði verið geymdur allan þennan tíma.
Brown var yfirheyrður skömmu eftir morðið vegna tengsla hans við Breuneau en var ekki handtekinn. Bruneau og Thelma Brown, eiginkona Larry Brown, voru vinkonur, störfuðu hjá sama flugfélaginu, höfðu leigt saman og áttu saman hús í Dallas.
Lögreglan segir að samband hjónanna við Bruneau hafi orðið stirt vegna fjármála tengdum húsinu í Dallas. Hjónin vildu að Bruneau findi sér nýjan leigjanda eða seldi húsið til að losa Thelma undan fjárhagslegum skuldbindingum því tengdu.
Bruneau vildi ekki verða við þessu og jókst spennan á milli hennar og hjónanna mjög i kjölfarið. Á meðan hún var að heiman kviknaði tvisvar í húsinu í Dallas. Lögreglan taldi að kveikt hefði verið í því þegar síðari eldsvoðinn kom upp.
Lögreglan segir að Brown hafi síðar beitt Bruneau miklum þrýstingi til að fá hana til að undirrita skjöl varðandi himinháan viðgerðarkostnað á húsinu en það kom byggingafyrirtæki hans til góða. Bruneau neitaði að undirrita þessi skjöl.
Fjölskylda hennar sagði lögreglunni að hún hefði sagt þeim frá þessu skömmu áður en hún var myrt og hafi sagt að hún væri hrædd við Brown.