Þegar líður að því að farið sé í frí, draga flestir vegabréfið fram, panta ferðina og pakka síðan niður.
En fæstir hugsa út í að liturinn á ferðatöskunni geti skipt máli. Reyndur flugmaður segir að það geti skipt máli hvernig ferðataskan er á litinn þegar kemur að því að finna hana á flugvellinum.
Þetta snýst ekki um tísku eða hönnun, heldur um praktískt vandamál sem mörg þúsund ferðamenn upplifa daglega.
Svartar og dökkar ferðatöskur eru vinsælastar þegar fólk kaupir sér ferðatösku. Ástæðan er að það ber minna á rispum, drullu og almennu sliti á þeim en á ljósum töskum og þess vegna velja margir dökkan lit.
Samkvæmt því sem reyndur flugmaður, sem ástralski miðillinn Nine ræddi við, þá hafa þessar vinsældir dökkra ferðataska sinn ókost.
Hann benti á að á farangursbandinu liggi oft tugir af dökkum ferðatöskum sem eru næstum því eins. Þetta gerir fólki erfitt fyrir við að finna töskuna sína og stundum fer fólk með ranga tösku heim.
Bandaríski ferðasérfræðingurinn Johnny Jet tók undir þetta og benti á að það sé auðveldara að koma auga á tösku sem er í áberandi lit eða með mynstri.
Þú þarft ekki að örvænta ef þú átt svarta tösku því það er hægt að nota einfaldar aðferðir til að gera töskuna þannig úr garði að þú getir borið kennsl á hana á örskotsstund.
Það er til dæmis hægt að kaupa teygjanlega ferðatöskuhlíf með litríkum myndum eða persónulegum myndum. Þær vernda töskuna einnig fyrir skemmdum.
Sumir setja staðsetningarbúnað í töskurnar sínar og geta þannig fylgst með staðsetningu þeirra í farsímanum.