Góðar svefnvenjur skipta gríðarlega miklu máli fyrir okkur og eru grunnurinn að því að við getum komist vel í gegnum daginn. Þegar þreytan knýr dyra á kvöldin, reiknum við með rólegum og truflanalausum svefni fram á morgun.
En því miður glíma margir við þau þrálátu leiðindi að vakna ítrekað yfir nóttina. Þetta getur gengið vel á orkuforðann og við vitum vel af þessu daginn eftir þegar við erum þreytt og skapið ekki alveg upp á það besta.
Margir gera þau mistök að telja truflanirnar á nætursvefninum ómerkilegar og að þær skipti ekki máli fyrir hið daglega líf okkar. En það geta verið ákveðnar ástæður fyrir því að við vöknum á nóttunni sem kalla á að við þeim sé brugðist.
Það er ekkert óeðlilegt við að fara á klósettið einu sinni á nóttu en ef þú vaknar tvisvar eða oftar til að fara á klósettið, þá bendir margt til að einhver ákveðin ástæða sé að baki.
Einföld skýring getur verið að þú drekkir of mikið þegar stutt er í háttatímann. Ef maður drekkur kaffi eða te seint á kvöldin, þá ýtir það undir þvaglát á nóttunni.
Eitt og annað breytist með aldrinum. Heilinn myndar ákveðið hormón sem takmarkar vökvaframleiðslu líkamans á nóttunni en þessi hormónaframleiðsla dregst saman með aldrinum.
Karlar finna sérstaklega fyrir miklum breytingum þegar aldurinn færist yfir. Um 40% karla eldri en 60 ára glíma við of stóran blöðruhálskirtil en það klemmir þvagrásina og veldur miklu álagi á þvagblöðruna.
Fyrir karla er enn verra ef þeir fá blöðruhálskrabbamein. Vandamál við þvaglát eru þekkt afleiðing af sjúkdómnum.
Hjá konum er það yfirleitt breytingaskeiðið og hinar miklu hormónabreytingar, sem því fylgja, sem skemma góðan nætursvefn.
Lélegur svefnrytmi tengist þörfinni fyrir að fara oft fram úr sterklega.
Sum lyf geta einnig haft áhrif á vökvajafnvægi líkamans, sérstaklega vatnslosandi lyf.
Kæfisvefn er einn af stóru sökudólgunum á bak við næturbröltið því önundarörðugleikar trufla getu líkamans til að stýra vökvaframleiðslunni.
Hjartasjúkdómar geta einnig valdið því að vökvi safnast fyrir í fótunum yfir daginn. Þegar fólk leggst flatt í rúmið leitar vökvinn eðlilega aftur inn í kerfið og það kallar á klósettferðir á nóttunni.