Þegar róin færist yfir fólk og dagurinn rennur sitt skeið á enda upplifa margir að líkaminn byrjar að láta vita af sér. Aum mjöðm, verkur í öxl eða hné geta skyndilega virst verri en fyrr um daginn.
Í umfjöllun The Times of India kemur fram að læknar segi að verkir á nóttunni sé algengir. Akhilesh Yadav, skurðlæknir, sagði að margir upplifi að verkirnir færist í aukana þegar dimma fer.
Dægurrytminn stýrir líkamanum, hefur stjórn á hormónunum, hitastiginu og bólgum. Á nóttunni minnkar magn náttúrulegra hormóna, sem vinna gegn bólgum, og það getur gert liði og vöðva stífari og viðkvæmari.
Á kvöldin hverfa málefni dagsins þegar við erum ekki lengur upptekin af vinnunni, samtölum og hreyfingu og þá veitum við skilaboðum frá líkamanum meiri athygli.
Á heimsvísu eru verkir í vöðvum og beinum meðal algengustu krónísku verkjanna og því eru það margir sem finna meiri verkjum þegar líkaminn fer í hvíldarástand.
Það getur líka haft áhrif þegar lagst er niður. Að vera í sömu stellingunni í langan tíma getur aukið stífleika í liðum, sérstaklega hjá þeim sem eru með slitgigt eða gömul meiðsli.
Ákveðnar svefnstellingar geta einnig valdið þrýstingi á taugar sem getur komið fram í verkjum. Liggjandi stellingar geta einnig gert einkenni frá maga og gallgöngum verri af því að þyngdaraflið hjálpar líkamanum ekki lengur á sama hátt.