Pressan

Ungbarni bjargað frá morðtilraun á Kanaríeyjum

Mynd
Mynd: Guardia Civil

Fimm mánaða ungbarni var bjargað frá meintri morðtilraun föður síns í bænum Vecindario á Gran Canaria eftir að nágrannar brugðust skjótt við neyðarópum móður barnsins. Atvikið átti sér stað síðastliðinn þriðjudagsmorgun þegar íbúar í nágrenninu heyrðu hávær rifrildi og móðirin hrópaði ítrekað á hjálp og sagði eiginmann sinn vera að reyna að drepa barnið.

Nágrannarnir brutust inn í íbúðina og fundu móðurina með áverka á andliti og hálsi. Í öðru herbergi fundu þeir föðurinn, sem er sagður hafa verið að reyna að kæfa fimm mánaða son hjónanna. Nágrannarnir yfirbuguðu manninn og héldu honum þar til lögregla kom á vettvang.

Lögreglan handtók manninn og kærði hann fyrir tvær tilraunir til manndráps, annars vegar gegn barninu og hins vegar móður þess. Einnig fannst hnífur sem talið er að hafi verið notaður til að veita konunni áverka. Barnið var með áverka sem bentu til kæfingartilraunar, auk þess að hafa verið hrist og slegið. Hvorki móðirin né barnið hlutu lífshættulega áverka.

Rannsakendur telja að skjót viðbrögð nágrannanna og lögreglunnar hafi komið í veg fyrir harmleik. Maðurinn er í gæsluvarðhaldi.

Sjá nánar á Canarian Weekly.