Pressan

Hjónin hurfu sporlaust – Rannsóknin afhjúpaði óhugnanlega áætlun

Mynd
Tom og Jackie Hawks.

Tom og Jackie Hawks voru lífeyrisþegar sem bjuggu um borð í 55 feta bát sínum. Þriðjudaginn 23. nóvember 2004 hafði fjölskyldu þeirra ekki tekist að ná sambandi við þau en báturinn lá í höfn í Newport Beach í Kaliforníu.

Vinir og ættingjar fóru að óttast að eitthvað slæmt hefði komið fyrir hjónin. Tom var 57 ára og Jackie 47 ára.

Bróðir Tom hafði samband við lögregluna og tilkynnti um hvarf þeirra og sagði að ekkert hefði heyrst frá þeim síðan 15. nóvember.

Hjónin bjuggu á bát sínum sem hét „Well Deserved“. Þau höfðu keypt sér bátinn til að fagna því þegar þau fóru snemma á eftirlaun.

Mynd

         Bátur þeirra hjóna hét Well Deserved.

Þau höfðu nýlega ákveðið að selja bátinn og ætluðu að flytja til Arizona til að vera nær fyrsta barnabarninu. Þau höfðu sagt vinum sínum að þau hefðu fundið kaupanda og að báturinn væri svo gott sem seldur.

Lögreglan fór um borð í bátinn sem lá í höfn í Newport Beach. Á dekkinu fann hún rauðbrúnan blett sem var talinn vera blóð. Neðanþilja fann hún persónulegar eigur þeirra hjóna og því taldi lögreglan að báturinn hefði ekki verið seldur.

En ekkert var að sjá sem benti til að eitthvað glæpsamlegt hefði átt sér stað.

Ræddu við kaupendurna

Þegar bróðir Tom tilkynnti um hvarf hjónanna sagði hann lögreglunni að væntanlegir kaupendur bátsins væru hjónin Skylar Deleon, 25 ára, og Jennifer Deleon, 23 ára.

Lögreglan hafði uppi á þeim og sagðist vera að leita að Tom og Jackie.

Ungu hjónin sögðust hafa áhyggjur af þeim því þeim hefði ekki tekist að ná sambandi við þau eftir að þau keyptu bátinn og greiddu þeim 750.000 dollara í reiðufé fyrir hann. Þau sögðust hafa ætlað að fá hjónin til að sækja eigur sínar í bátinn.

Þau sögðust hafa afhent þeim ferðatösku með peningunum og að síðan hafi Tom og Jackie ekið á brott í bíl sínum, Honda CR-V.

Jennifer sýndi lögreglunni kvittun fyrir kaupunum. Á henni var kaupverðið og staðfesting frá lögbókanda og vitni sem var til staðar þegar gengið var frá kaupunum.

Lögreglunni fannst undarlegt að ung hjón, sem bjuggu með barn sitt í bílskúr við heimili foreldra annars þeirra, hefðu efni á að kaupa stóra bát eins og „Well Deserved“.

Mynd

         Skylar og Jennifer.

Þegar þau voru spurð hvernig þau hefðu fjármagnað kaupin, sagði Skylar að hann hefði notað peninga sem hann fékk þegar hann var leikari á barnsaldri sem og peninga sem hann hafði aflað með kaupum og sölu á fasteignum í Mexíkó.

Lögreglumenn sögðu þá hreint út að þessu tryðu þeir ekki. Skylar dró þá djúpt andann og sagðist vilja játa svolítið. Hann sagði að peningarnir væru afrakstur fíkniefnasölu og að hann hefði verið að þvætta peningana með kaupum á bátnum. Þess vegna hefði hann greitt hann með reiðufé.

Lögreglumennirnir voru mjög hissa á að Skylar játaði alvarlegt afbrot en trúðu honum og töldu að hvorki hann né Jennifer væru viðriðin hvarf hjónanna.

Til að staðfesta frásögn hjónanna ræddi lögreglan við vitnið og löggiltan lögbókanda, sem hafði staðfest kaupin á bátnum. Vitnið var Alonso Machain, 22 ára, vinur Skylar og lögbókandinn var Kathleen Harris. Þau staðfestu bæði sögu Skylar og Jennifer.

Óvæntar vendingar

Lögreglan stóð frammi fyrir erfiðu máli og var ekki nær því en áður að finna Tom og Jackie.

Þegar farið var fram á heimild til að leggja hald á bátinn til að hægt væri að framkvæma ítarlega vettvangsrannsókn mótmæltu Skylar og Jennifer ekki.

Rannsókn á bátnum skilaði engum árangri því ekkert fannst sem gaf til kynna að eitthvað refsivert hefði átt sér stað og brúni bletturinn, sem var talinn vera blóð, reyndist vera ryð.

Þremur vikum eftir að síðast heyrðist frá Tom og Jackie barst lögreglunni óvænt ábending. Tvær manneskjur höfðu reynt að fá aðgang að bankareikningi hjónanna með því að framvísa undirrituðu umboði. Bankastarfsmaðurinn taldi að um svik gæti verið að ræða og sagði fólkinu að þau þyrftu einnig að framvísa dómsúrskurði til að fá aðgang að bankareikningnum.

Lögreglan fékk upptökur úr eftirlitsmyndavélum bankans og sá strax að það voru Skylar og Jennifer sem höfðu reynt að fá aðgang að bankareikningnum.

Mynd

        Jennifer og Skylar í bankanum.

Nú beindist áhugi lögreglunnar aftur að hjónunum.

Dæmdur fyrir vopnað rán

Þegar lögreglan skoðaði fortíð Skylar og Jennifer kom í ljós að hann hafði nýlega fengið reynslulausn úr fangelsi þar sem hann afplánaði dóm fyrir vopnað rán.

Nú taldi lögreglan að einhver árangur hefði loksins náðst í rannsókninni og vildi gjarnan ræða við Skylar á nýjan leik en þó án þess að skýra honum frá nýjustu upplýsingunum. Honum var því boðið að koma á lögreglustöðina undir því yfirskini að lögreglan væri reiðubúin að afhenda honum bátinn en fyrst yrði að spyrja hann nokkurra spurninga.

Þegar rætt var við hann var hann spurður af hverju Tom og Jackie hefðu veitt honum umboð til að ráða yfir bankareikningi þeirra.

Mynd

        Jennifer og Skylar á góðri stund.

Hann sagðist hafa ætlað að hjálpa þeim að kaupa sumarhús í Mexíkó og að hann hefði getað hjálpað þeim við að stofna bankareikninga í Mexíkó í þeirra nafni.

Þessu trúði lögreglan ekki, ekki síst af því að Skylar gat ekki gefið góða skýringu á af hverju hann hafði notað umboðið til að reyna að fá aðgang að bankareikningi hjónanna í Kaliforníu.

Lögregluna fór nú að gruna að málið væri mun alvarlegra en bara mannshvarf.

Bíllinn fannst

Mikil leit var gerð að bíl Tom og Jackie og fjölmiðlar auglýstu eftir honum og sjónvarpsstöðvar fluttu fréttir um málið með myndum af hjónunum, bátnum og bílnum.

Skömmu síðar hringdi kona, sem var stödd í Baja í Mexíkó, og sagðist vera á bílastæði þar sem Hondan væri. Hún sendi nokkrar ljósmyndir og lögreglan sá á þeim að þetta var bíllinn sem leitað var að.

Mynd

         Bíllinn fannst í Mexíkó.

Lögreglumenn fóru til Mexíkó og ítarleg rannsókn var gerð á bílnum áður en hann var fluttur til Bandaríkjanna.

DNA úr Skylar fannst á stjórnborði loftkælingar bílsins.

Hugðust flytja

Málið tók síðan nýja stefnu þegar skilorðsfulltrúi Skylar tilkynnti lögreglunni að Skylar hefði í hyggju að flytja frá Bandaríkjunum. Lögreglan hafði ekki nægar sannanir til að kæra hann fyrir morð en vildi fyrir alla muni koma í veg fyrir að hann myndi yfirgefa landið.

Á grundvelli upplýsinganna frá skilorðsfulltrúanum var ákveðið að handtaka Skylar eins fljótt og hægt væri. Lögreglan gat handtekið hann á grundvelli játningar hans um fíkniefnasölu og peningaþvætti.

Lögreglan fékk dómsúrskurð til að gera leit í bílskúrnum þar sem Skylar og Jennifer bjuggu. Vonin var að þar myndi eitthvað finnast sem tengdi þau við hvarf Tom og Jackie.

Þegar lögreglan kom í bílskúrinn var Skylar umsvifalaust handtekinn. Þegar honum var sagt að það væri vegna peningaþvættis gat hann ekki leynt því að honum var mjög létt.

Mynd

         Skylar eftir handtökuna.

Við leitina í bílskúrnum fann lögreglan bakpoka sem innihélt meðal annars persónuskilríki Tom og Jackie. Einnig fannst fartölva hjónanna, persónuleg skjöl þeirra og fjöldi myndbandsspóla með upptökum sem þau höfðu gert.

Lögreglan var sannfærð um að Jennifer væri viðriðin málið en skorti sannanir til að geta handtekið hana.

Lögbókarinn játaði

Næsta skref lögreglunnar var að yfirheyra Alonso, sem hafði vitnað um söluna á bátnum, og lögbókandann Kathleen.

Byrjað var á Kathleen því lögreglan taldi hana vera veikasta hlekkinn í þeim hópi sem virtist hafa staðið að hvarfi Tom og Jackie. Ekkert benti til að hún hefði þekkt hin áður og taldi lögreglan að peningar hefðu freistað hennar.

Lögreglumenn beittu Kathleen miklum þrýstingi í yfirheyrslunni. Í fyrstu hélt hún sig við fyrri framburð sinn en smám saman fór framburður hennar að breytast.

Mynd

         Kathleen hafði freistast af loforði um peninga.

Sólarhring eftir yfirheyrsluna hringdi lögmaður Kathleen í lögregluna og sagði að hún vildi segja frá ýmsu ef hún yrði ekki ákærð. Fallist var á þetta.

Þegar Kathleen var yfirheyrð á nýjan leik lagði hún spilin á borðið. Hún sagðist aldrei hafa hitt Tom og Jackie og heldur ekki Alonso. Hún sagði að Skylar hefði talið hana á að falsa sölukvittunina gegn því að fá greitt fyrir.

Brast í grát

Nú var röðin komin að Alonso en hann var flúinn til Mexíkó. Lögreglunni tókst að komast í samband við hann og sagðist hann reiðubúinn til samstarfs en það yrði metið honum til hagsbóta þegar kæmi að því að kveða upp dóm. Samið var um að ekki yrði farið fram á dauðadóm yfir honum og í kjölfarið sneri hann aftur til Bandaríkjanna.

Þegar hann var yfirheyrður sagði hann að Skylar hefði sett sig í samband við sig og sagst vera með ábatasama áætlun og bauð honum eina milljón dollara fyrir að aðstoða við að stela bát Tom og Jackie.

Mynd
Alonso Machain

         Alonso.

Alonso sagði að þriðji maðurinn hafi einnig verið viðriðinn máli. Hann hét John Fitzgerald Kennedy, 40 ára, og var meðlimur glæpagengis í Los Angeles.

Alonso sagði að hann, Skylar og John hafi farið í reynslusiglingu með Tom og Jackie. Jennifer og barn hennar og Skylar var einnig með í för. Ástæðan var að þau töldu að Tom og Jackie myndi finnast þau öruggari þegar bæði kona og barn væru með í för.

Mynd

        John.

Þegar báturinn var kominn langt út á sjó yfirbuguðu Skylar og John Tom. Þeir þvinguðu hann niður á hnén og handjárnuðu. Jackie hlaut sömu meðferð.

Þau voru síðan neydd til að skrifa undir söluvottorð og umboðið fyrir bankann.

Alonso brast í grát þegar hann sagði frá því sem gerðist eftir þetta.

Tom og Jackie voru bundin á höndum og fótum og þung lóð fest við þau. Þau grátbáðu um miskunn en Skylar hunsaði það algjörlega og þeim var kastað fyrir borð.

Mynd

        Tom og Jackie Hawks.

Alonso sagðist hafa orðið óglatt og þetta hafi haft mikil áhrif á hann en Skylar hafi verið sallarólegur. Alonso lagði áherslu á að hann hafi talið að ætlunin væri að stela bátnum, ekki drepa neinn.

Réttarhöld

Frá 2006 til 2009 fóru réttarhöld fram í málinu en mál hvers og eins hinna ákærðu var tekið fyrir sér svo úr urðu nokkur réttarhöld.

Skylar var fundinn sekur um morð að yfirlögðu ráði og var dæmdur til dauða.

Jennifer var dæmd í ævilangt fangelsi án möguleika á reynslulausn.

John Fitzgerald Kennedy var dæmdur til dauða.

Alonso var dæmdur í 20 ára fangelsi.

Lík Tom og Jackie hafa aldrei fundist.