Pressan

Móðir lifði í ótta við eltihrelli sinn – eftir morðið kom í ljós að hann var inni á heimilinu allan tímann

Mynd
Kristil og Daniel Krug.

Kristil Krug eyddi síðustu vikum ævi sinnar í að reyna að finna manninn sem ofsótti hana. Hún safnaði skjáskotum, vistaði tölvupósta, hélt ítarlega dagbók um ógnandi skilaboð og leitaði bæði til lögreglu og einkaspæjara. Eftir því sem skilaboðunum fjölgaði varð hún sannfærð um að einhver fylgdist með hverju skrefi hennar.

Tveimur mánuðum síðar var hún myrt í bílskúr heimilis síns í Colorado.

Samkvæmt ítarlegri umfjöllun CNN sem birtist á dögunum kom síðar í ljós að eltihrellirinn sem hún hafði óttast svo mjög var ekki ókunnugur maður. Rannsókn leiddi í ljós að sá sem stóð á bak við skilaboðin var eiginmaður hennar, Daniel Krug, sem síðar var sakfelldur fyrir morðið.

Skilaboð frá ókunnugum manni

Kristil Krug var 43 ára lífefnaverkfræðingur og þriggja barna móðir sem bjó með fjölskyldu sinni í Broomfield, úthverfi Denver í Colorado.

Þann 2. október 2023 fékk hún skilaboð úr símanúmeri sem hún kannaðist ekki við. Sendandinn sagðist vera fyrrverandi kærasti sem byggi í Utah og vildi hitta hana.

Fljótlega fóru fleiri skilaboð að berast.

Þegar hún svaraði ekki urðu þau sífellt tíðari, grófari og meira ógnvekjandi. Sendandinn fór að senda klámfengnar myndir og nefna persónuleg atriði sem bentu til þess að hann fylgdist náið með lífi hennar.

Í einum skilaboðunum benti hann á að númeraplatan á bílnum hennar væri útrunnin. Nokkrum dögum síðar sendi hann henni skilaboð um að hann hefði séð hana hjá tannlækni sama dag og hún hafði í raun verið þar.

Í hvert sinn sem hún lokaði á eitt númer birtist annað.

Krug byrjaði að halda það sem hún kallaði „eltihrellisdagbók“, þar sem hún skráði hver einustu skilaboð, símtöl og samskipti. Hún vistaði skjáskot, tölvupósta og aðrar upplýsingar sem hún taldi geta nýst lögreglu við rannsókn málsins.

Frænka hennar, Rebecca Ivanoff, sagði síðar við CNN að Kristil hefði verið ótrúlega skipulögð þrátt fyrir að lifa við stöðugan ótta. „Hún skráði í raun allt niður,“ sagði Ivanoff.

Óttinn tók yfir líf hennar

Eftir því sem vikurnar liðu varð Krug sífellt hræddari.

Hún fór á námskeið í meðferð skotvopna, keypti sér skammbyssu og piparúða og æfði neyðaráætlanir með börnum sínum þremur ef eltihrellirinn skyldi ráðast inn á heimili þeirra.

Fimm dögum áður en hún var myrt fékk hún skírteini sem staðfesti að hún hefði lokið þjálfun í notkun skammbyssu.

Á sama tíma virtist hjónaband hennar og Daniels Krug vera komið í alvarlega kreppu. Samkvæmt gögnum málsins hafði hún verið að undirbúa skilnað og óskað eftir fullri forsjá yfir börnum þeirra.

Um þetta leyti urðu skilaboðin sífellt óhugnanlegri.

„Þú átt ekki heima í þessu stóra húsi. Þú átt heima hjá mér,“ sagði í einum skilaboðum sem hún fékk

Í öðrum stóð:

„Ég losa mig við hann og þá getum við verið saman.“

Vegna þessara skilaboða taldi lögregla um tíma að eiginmaður hennar gæti sjálfur verið í hættu. Lögreglumenn voru sendir á vinnustað Daniels Krug til að kanna öryggi hans.

Það sem enginn vissi þá var að samkvæmt rannsókninni var hann sjálfur maðurinn á bak við skilaboðin.

Morðið í bílskúrnum

Að morgni 14. desember 2023 ók Kristil börnum sínum í skólann eins og venjulega.

Þegar hún kom heim beið morðinginn hennar.

Samkvæmt saksóknurum hafði Daniel Krug beðið eftir henni í leyni í bílskúrnum. Hann réðst aftan að eiginkonu sinni, sló hana í höfuðið með barefli og stakk hana síðan í hjartað.

Yfirvöld sögðu síðar að hún hefði verið með hlaðna skammbyssu falda á sér þegar árásin var framin.

Síðar sama dag hafði Daniel Krug samband við lögreglu og óskaði eftir því að kannað yrði með eiginkonu sína þar sem hann hefði ekki náð sambandi við hana. Í ljósi þeirra ógnana og hótana sem hún hafði fengið þótti honum réttast að lögregla kannaði málið.

Þegar lögregla mætti á vettvang fannst Kristil Krug aftur á móti látin í bílskúrnum.

Eltihrellirinn var eiginmaðurinn

Rannsókn leiddi síðar í ljós að Daniel Krug hafði eytt mánuðum í að skapa ímynd óþekkts eltihrellis.

Hann notaði svokallaða brennarasíma, einnota símkort og fölsuð netföng til að fela slóð sína. Sum skilaboðanna voru síðar rakin til IP-tölu á vinnustað hans.

Rannsakendur komust einnig að því að daginn áður en eiginkona hans var myrt hafði hann leitað á Google að spurningunni:

„Hversu fast þarf að slá mann í höfuðið til að gera hann meðvitundarlausan?“

Saksóknarar sögðu að markmið hans hefði verið að hræða eiginkonu sína og reyna að koma í veg fyrir að hún yfirgæfi hann. Ef hún yrði nógu hrætt teldi hún öryggi sínu að líkindum best borgið hjá honum.

Eftir réttarhöld á síðasta ári var Daniel Krug sakfelldur fyrir morð af yfirlögðu ráði, umsáturseinelti og að villa á sér heimildir.

Við dómsuppkvaðningu var saksóknarinn Brian Mason ómyrkur í máli og sagði að um hafi verið að ræða hrottalegt og skipulagt morð – eiginkona hans hafi lifað í stöðugum ótta mánuðum saman áður en hún lést á hrottafenginn hátt.

Daniel Krug afplánar nú lífstíðardóm án möguleika á reynslulausn.

Gögnin bárust of seint

Eftir morðið kom í ljós að lögregla hafði þegar hafið rannsókn á umsáturseineltinu meðan Kristil var enn á lífi.

Dómari hafði samþykkt beiðnir um gögn frá fjarskipta- og tæknifyrirtækjum sem hefðu getað leitt rannsakendur að gerandanum. Svörin bárust hins vegar ekki fyrr en eftir að Kristil hafði verið myrt.

Mynd

Frænka hennar, Rebecca Ivanoff, telur að tafirnar hafi haft afdrifaríkar afleiðingar.

„Fjarskiptafyrirtækin höfðu lykilinn að því að afhjúpa hver eltihrellirinn var – og þar með morðinginn hennar,“ sagði hún við CNN. Að hennar mati hefði hraðari afhending gagna getað breytt gangi mála og Kristil væri líklega á lífi í dag ef gögnin hefðu borist nógu tímanlega.

Málið varð kveikjan að nýjum lögum

Sorg fjölskyldunnar breyttist síðar í baráttu fyrir breytingum.

Ivanoff hefur unnið að því að þrýsta á um lagabreytingar sem skylda tæknifyrirtæki til að bregðast hraðar við beiðnum lögreglu í málum sem tengjast umsáturseinelti og heimilisofbeldi.

Sú barátta leiddi til samþykktar svokallaðra Kristil-laga í Oregon-ríki.

Ivanoff segir að markmiðið sé að koma í veg fyrir að aðrar fjölskyldur upplifi sömu sorg.

„Hún gerði allt rétt. Hún gerði allt sem fólki er sagt að gera í svona aðstæðum. Þessi hluti kerfisins brást henni einfaldlega,“ sagði hún við CNN.