Þetta er meðal þess sem kemur fram í ákærunni á hendur manninum. B.T. segir að það sé lögreglan í Kaupmannahöfn sem hafi rannsakað málið.
Eins og áður sagði hellti maðurinn áfengi í piltinn og neyddi hann síðan til að veita sér munngælur og síðan nauðgaði hann honum. Að þessu loknu greiddi hann drengnum sem nemur um 20.000 íslenskum krónum.
Daginn eftir hellti maðurinn aftur áfengi í drenginn og lét hann veita sér munngælur á nýjan leik. Hann greiddi honum síðan sem svarar til um 12.000 íslenskum krónum.
Maðurinn er einnig ákærður fyrir að hafa reynt að fá tvo aðra pilta, 11 og 15 ára, til kynferðislegra athafna með sér gegn greiðslu. Hann komst í samband við þá í gegnum Snapchat og sendi þeim meðal annars typpamyndir og myndband af getnaðarlim sínum. Hann lofaði þeim rafrettum og sem svarar til um 40.000 íslenskum krónum.