Maðurinn var handtekinn í Flórída, grunaður um að hafa stolið eyrnalokkunum úr verslun Tiffany og Co. Hann kom þangað inn og þóttist hafa áhuga á að kaupa eyrnalokka og demantshring fyrir hönd liðsmanns NBA liðs Orlando Magic.
Honum var fylgt inn í sérstakt herbergi þar sem hann gat skoðað skartgripina sen skömmu síðar stökk hann upp úr stól sínum greip skartgripina og ruddist út.
Sky News skýrir frá þessu og segir að lögreglan hafi séð skráningarnúmerin á bíl mannsins, á upptökum úr eftirlitsmyndavélum. Akstur hans var síðar stöðvaður í Washington County, í um 500 km fjarlægð frá verslun Tiffany og Co.
Þegar lögreglan ræddi við manninn sagði hann: „Ég hefði átt að henda þeim út um gluggann.“ Þegar hann hafði verið fluttur í fangelsi spurði hann fangaverðina: „Verð ég kærður fyrir magann minn?“.
Sumir eyrnalokkanna skiluðu sér fljótlega. Maðurinn var síðan fluttur á sjúkrahús þar sem lögreglumenn vöktuðu hann og biðu eftir að restin af eyrnalokkunum skilaði sér. Það gerðu þeir að lokum og raðnúmer á þeim staðfestu að þetta voru eyrnalokkar sem var stolið úr versluninni.
Þjófurinn er nú í fangelsi í Orange County og bíður þess að mál hans verði tekið fyrir dóm.