Karoline Leavitt, fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, sagði nýlega að Frakkar „eigi að vera þakklátir fyrir að tala ekki þýsku“ eftir að umræða fór af stað um að Bandaríkjamenn eigi að skila Frökkum Frelsisstyttunni.
Franski stjórnmálamaðurinn Raphael Glucksmann strýddi Bandaríkjamönnum nýlega þegar hann sagði að réttast sé að þeir skili Frökkum Frelsisstyttunni en hana gáfu Frakkar þeim.
Leavitt var ekki ánægð með þessi ummæli hans og sagði að Frakkar eigi að vera Bandaríkjamönnum þakklátir fyrir að þeir tali ekki þýsku núna.
Glucksmann, sem situr á Evrópuþinginu fyrir franska vinstri flokkinn Place Publique, sagði réttast að Bandaríkjamenn skili Frelsisstyttunni því Bandaríkin standi ekki lengur fyrir þau gildi sem umlykja Frelsisstyttuna því þau hafi tekið sér stöðu með „harðstjórum“.
Leavitt sagði að Donald Trump hafi „alls ekki“ í hyggju að skila styttunni.