Margir erlendir fjölmiðlar hafa fjallað um þessi trend sem snúast um að hámarka svefninn með því að fylgja ákveðnum rútínum og úrræðum. Um mörg mismunandi ráð er að ræða og þarf fólk ekki að fylgja þeim öllum.
Myndbönd tengd þessu eru mjög áberandi á TikTok. Í þeim segir ungt fólk hvað það gerir til að sofa í minnst átta klukkustundir á hverri nóttu. Myndböndin hafa fengið milljónir áhorfa og Sky News segir að gríðarlega mikið hafi verið um að fólk noti myllumerkið „sleepmaxxing“ við leit á samfélagsmiðlum.
Meðal þeirra ráða sem er deilt varðandi „sleepmaxxing“ eru þessi:
Að vera með límband yfir munninum á meðan sofið er.
Ekki drekka neitt síðustu tvær klukkustundirnar fyrir svefninn.
Að hafa hitastigið í svefnherberginu í lægri kantinum, venjulega á milli 16-18 gráður.
Hafa algjört myrkur í svefnherberginu.
Ekki stilla vekjaraklukku.
Fara í bað einni klukkustund fyrir háttatímann.
Taka magnesíum og melatónín.
Borða kíví fyrir háttinn.
Ekki drekka koffín.
Fá sólarljós í 30 mínútur á dag.
Hugleiða í 30 mínútur á dag.
En virkar þessar aðferðir? TV2 leitaði nýlega svara við því hjá Birgitte Rahbek Kornum, sem stundar svefnrannsóknir hjá taugavísindadeild Kaupmannahafnarháskóla.
Hún sagði að vaxandi áhugi fólks á að fylgja aðferðum af þessu tagi sé afleiðing af því að fólk vilji lifa eins heilbrigðu lífi og hægt er. Þess utan eigi margir erfitt með svefn og fólk sé orðið meðvitaðra um mikilvægi svefns.
Hún sagðist ekki gefa mikið fyrir margar af þeim vörum sem fólki er ráðlagt að kaupa til að bæta svefninn og hún sagðist hafa litla trú á mörgum af trendunum sem tröllríða TikTok. Sumt geti hugsanlega hjálpað fólki en áhrifin hafi hins vegar ekki verið mikið rannsökuð.
Laura Kanadel, svefnleiðbeinandi hjá fyrirtækinu The Sleep Institute, segist sjálf vera „sleeepmaxxer“ og sagðist hafa prófað flest þau ráð sem gefin hafa verið um þetta. Hún hefur sofið með límband yfir munninum, tekið melatónín og mælt svefninn nákvæmlega. Sumt gerir hún enn þá en annað hefur hún lagt á hilluna. „Ég hef prufað þetta allt. Mín reynsla er að þetta virkar í ákveðinn tíma og síðan hverfa áhrifin af því að líkaminn lagar sig að þessu,“ sagði hún.