En gluggasætin geta verið hættulegustu sætin í vélinni. Þetta kemur eflaust mörgum á óvart en ástæðan fyrir þessu er að þegar maður situr við gluggann, þá verður maður fyrir meiri útfjólubláum geislum en hinir farþegarnir. Geislarnir geta skaðað húðina.
Þegar flugvélar hækka flugið, þynnist loftið og þar með dregur úr náttúrulegri vörn gegn þessum hættulegu sólargeislum. Þetta þýðir einfaldlega að útfjólubláu geislarnir, sem lenda á flugvélagluggunum, eru mun sterkari en þeir sem lenda á jörðinni.
Flugvélagluggar eru yfirleitt gerðir úr plastefnum eða lagskiptu gleri. Þeir sía hluta af UVB-geislunum úr en UVA-geislarnir, sem fara langt inn í húðina, sleppa í gegn.
CHIP segir að rannsóknir hafi sýnt fram á að flugmenn og aðrir áhafnarmeðlimir séu í tvöfalt meiri hættu á að fá húðkrabbamein en aðrir. Þetta sannar að það hefur áhrif að fljúga í háloftunum.
Ef þú vilt vera í gluggasæti, þá er hægt að grípa til ákveðinna aðgerða til að draga úr áhrifum sólargeislanna. Sérfræðingar ráðleggja fólki að nota sólarvörn, ekki af minni styrkleika en 30, þegar flogið er. Þetta á sérstaklega við í langflugi þar sem geislarnir geta lent á fólki í langan tíma.
Húðlæknar ráðleggja fólki að nota sólarvörn, jafnvel þótt það sé skýjað að lítið sólskin. Ástæðan er að UVA-geislarnir valda ekki sólbruna eins og UVB-geislarnir en þeir valda samt tjóni og það uppgötvast hugsanlega ekki fyrr en löngu síðar.