En hvað tegund á að drekka? Það er kannski ekki svo auðvelt að vita það, því það eru til ótal tetegundir. Sumar eru betri en aðrar þegar kemur að því að takast á við kvef.
Hér fyrir neðan nefnum við fjórar bestu tetegundirnar til að takast á við kvef.
Engiferte – Engifer er þekkt fyrir að vinna gegn bólgum og að vera verkjastillandi. Það getur dregið úr hálsbólgu, dregið úr bólgum og meira að segja unnið gegn flökurleika. Engifer inniheldur andoxunarefni sem styrkja ónæmiskerfið.
Kamillute- Kamillute er ein vinsælasta tetegundin þegar kemur að því að slaka á og draga úr kvefeinkennum. Það róar líkamann og getur hjálpað þér við að sofa betur. Það vinnur gegn bólgum og bakteríum.
Piparmyntute – Það er þekkt fyrir frískandi bragð og að geta mildað óþægindin sem fylgja stífluðu nefi og kinnholum. Það inniheldur mentól sem hjálpar til við að opna öndunarveginn. Það getur einnig mildað höfuðverk og beinverki sem eru oft fylgifiskar kvefs.
Grænt te – Grænt inniheldur mikið af andoxunarefnum sem hjálpa til við að styrkja ónæmiskerfið og berjast gegn veirum. Það getur stytt veikindatímann. Það inniheldur einnig smávegis koffín sem þýðir að þú færð smá orkuskot.