fbpx
Föstudagur 21.febrúar 2025
Pressan

Musk neitar að ríkisstjórn Trump ætli að kaupa Teslu Cybertrucks fyrir 56 milljarða

Pressan
Miðvikudaginn 19. febrúar 2025 07:00

Ætlar Trump að kaupa fjölda Cybertruck af vini sínum Musk?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég er nokkuð viss um að Tesla fær ekki 400 milljónir dollara. Að minnsta kosti hefur enginn sagt mér það.“ Þetta skrifaði Elon Musk, aðaleigandi Tesla og hægri hönd Donald Trump forseta, á samfélagsmiðilinn X, sem er í hans eigu.

Hann var þarna að svara fréttaflutningi Drop Site News og The New York Times um að stjórn Donald Trump ætli að kaupa Tesla Cybertrucks að andvirði 400 milljóna dollara (það svarar til um 56 milljarða íslenskra króna). Var þetta sagður einn stærsti kaupsamningur ríkisins á þessu ári.

Tesla Cybertrucks eru brynvarðir rafbílar.

Svar Musk á X var við færslu eins notanda sem benti á að í innkaupaspá ríkisstjórnar Trump fyrir árið 2025 komi fram að kaupa eigi „Tesla“. Skömmu eftir að notandinn benti á þetta var orðið „Tesla“ fjarlægt úr spánni og í staðinn skrifað „Armored Electric vehicles“ (brynvarðir rafbílar).

The Independent segir að í desemberútgáfu innkaupaspárinnar hafi staðið „Armored Tesla“ (brynvarðar Teslur).

Mörgum þykir svar Musk vera hálf loðið því hann hafi aðeins svarað að Tesla fái ekki 400 milljónir dollara en hafi ekki neitað því að ríkið muni kaupa Teslur.

Hann er sagður hafa styrkt forsetaframboð Trump um 250 milljónir dollara og margir telja að Trump muni launa honum þetta á einhvern hátt, hugsanlega með að kaupa margar Teslur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Ein fremsta tennisstjarna heims brotnaði niður þegar hún sá hver var í stúkunni

Ein fremsta tennisstjarna heims brotnaði niður þegar hún sá hver var í stúkunni
Pressan
Í gær

Frans páfi sagður búa sig undir dauðann

Frans páfi sagður búa sig undir dauðann