Zhang sat við hlið föður síns sem sat undir stýri á Teslu Model 3-bifreið Zhang þegar hann byrjaði skyndilega að kalla í örvæntingu sinni að bremsurnar á bílnum virkuðu ekki. Bifreiðin var að nálgast rautt ljós og tókst föður hennar að sveigja fram hjá tveimur bílnum en á gatnamótunum lenti hann í árekstri við pallbíl og annan fólksbíl uns hann nam staðar á steinsteyptum vegg.
Faðir hennar og móðir voru fluttu á sjúkrahús talsvert slösuð en Zhang slapp ómeidd. Hún ákvað að láta til sín taka á samfélagsmiðlum eftir slysið og gagnrýna bílaframleiðandann vegna þess hvernig tekið var á málinu.
Ekki vildi betur til en svo að Tesla fór í mál við Zhang vegna órökstuddra ásakana, að mati lögmanna fyrirtækisins, og endaði hún á að þurfa að borga Tesla sem nemur tæpur þremur milljónum króna en auk þess þurfti hún að biðjast opinberlega afsökunar á ásökunum sínum.
Í frétt ABC, sem fjallar um málið kemur fram að Zhang sé ekki eini Teslu-eigandinn sem lent hefur í þessu. Á undanförnum árum hefur sex bíleigendum verið stefnt, öllum í Kína, og hefur Tesla unnið öll málin. Þá hefur tveimur fjölmiðlum verið stefnt og hefur Tesla einnig unnið þau mál.
Í umfjöllun ABC kemur fram að Zhang hafi reynt hvað hún gat að fá afhentar upplýsingar úr tölvukerfi bílsins sem hefðu getað varpað ljósi á hvað gerðist nákvæmlega í aðdraganda slyssins. Tesla hafnaði því hins vegar að afhenda þessi gögn.