Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar þar sem unnið var með gögn rúmlega 6.000 þátttakenda.
STV News segir að vísindamennirnir hafi rannsakað hversu oft þátttakendurnir hreyfðu sig, þar á meðal með göngu, sundi eða í hópíþróttum, í þrjá áratugi, fyrir og eftir fimmtugsafmælið. Heilar þeirra voru myndaðir og myndirnar síðan greindar ofan í kjölinn.
Telja vísindamennirnir að hreyfing hjálpi til við að viðhalda rúmmáli heilans á svæðum sem stýra hugsun og minni. Þeir þátttakendur, sem hreyfðu sig reglulega, voru einnig síður líklegri til að upplifa andlega hnignun og skipti þá engu þótt þeir hefðu sýnt snemmbúin merki um Alzheimers.
Rannsóknin leiddi í ljós að hreyfing allt lífið gerði að verkum að heilastarfsemin var betri um sjötugt en ella og átti það einnig við um þá sem voru með snemmbúin merki um Alzheimers. Ávinningurinn af hreyfingu var meiri hjá konum en körlum.