Fiskurinn, sem kallast einfaldlega Svartdjöfull, sást engu að síður nálægt yfirborðinu við strendur Tenerife fyrir skemmstu en afar sjaldgæft er að vísindamönnum takist að festa þá á filmu í sínu náttúrulega umhverfi.
„Þetta var eins og draumur að rætast,“ segir ljósmyndarinn David Jara Bogunyá í samtali við National Geographic en það var hann sem náði myndunum af Svartdjöflinum þann 26. janúar síðastliðinn.
Bruce Robison, vísindamaður við Monterey Bay Aquarium Research Institute, segir við National Geographic að það sé afar sjaldgæft að sjá svona djúpsjávarfisk svo nálægt yfirborðinu. Hann veit hvað hann syngur í þessum efnum því hann náði fyrstur mynd af fiskinum árið 2014.
Á Wikipediu er grein á íslensku um Svartdjöfulinn en þar kemur fram að hann sé einnig stundum kallaður lúsífer. Hann er með afar beittar tennur sem líkjast vígtönnum og lifir hann á um tvö þúsund metra dýpi.
„Þessir fiskar hafa aðlagast vel að myrkri heimkynna sinna. Þeir hafa öðlast hæfni við að lifa af í þessum beiska, kalda og almyrkva heimi. Náttúrulegt loftnet á höfði fisksins virkar sem beita. Hann notar oxunarferli sem kallast lúsiferín, bakteríur sem framkalla ljós en lúsifer merkir ljósberi. Þetta veldur að toppurinn á tálbeitunni fer að ljóma sem þannig laðar bráð að honum. Þegar minni djúpsjávarverur koma nálægt honum, opnast munnur hans sjálfkrafa. Bráðin hefur þá enga möguleika á að sleppa,” segir á Wikipediu.