fbpx
Miðvikudagur 12.febrúar 2025
Pressan

Það gæti þegar verið of seint að bregðast við loftsteini sem stefnir á jörðina

Pressan
Miðvikudaginn 12. febrúar 2025 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við höfum ekki mikinn tíma,“ segir vísindamaðurinn og náttúruvísindaskýrandinn Dr. Robin George Andrews um loftsteininn 2024 YR4 sem töluvert hefur verið fjallað um síðustu daga.

Bandaríska geimferðastofnunin NASA metur líkurnar á að loftsteinninn lendi í árekstri við jörðina um 2,3% en ekki er langt síðan líkurnar voru metnar 1,3%. Ef af árekstri verður mun það gerast rétt fyrir jólin 2032 og gætu afleiðingarnar orðið mjög alvarlegar.

Andrews, sem er með um 25 þúsund fylgjendur á X, skýrði frá því í nokkrum færslum á miðlinum að ýmsir hefðu varpað því fram að nægur tími sé til að bregðast við ef allt fer á versta veg.

Sjá einnig: Hann er 90 metrar á lengd og stefnir á jörðina – Hverjar verða afleiðingarnar ef til áreksturs kemur?

Hefur hið svokallaða DART-verkefni NASA verið rifjað upp en árið 2022 rakst geimfarið DART á smástirnið Dimorphos. Var markmiðið að kanna hvort hægt væri að breyta stefnu smástirnis ef það kynni að stefna á jörðina. Verkefnið gekk upp og töldu margir að þar með hefði mannkynið fundið lausn á þessari hættu.

Andrews segir að málið sé ekki endilega svo einfalt því verkefni af þessari stærðargráðu krefjist margra ára undirbúnings. Segir hann að þegar allt er talið til muni slíkt verkefni taka um tíu ár frá undirbúningi og þar til geimfarið lendir á loftsteininum – ef það þá tekst á annað borð. Í verkefni sem þessu geti margt farið úrskeiðis og það þurfi að hafa mjög hraðar hendur.

Á þessum tímapunkti vita vísindamenn ekki með vissu hversu stór loftsteinninn 2024 YR4 er eða hvernig hann er samsettur. Vísindamenn hafa þó giskað á að hann sé um 90 metrar á lengd. Enn er verið að safna gögnum um hvaða stefnu loftsteinninn tekur og munu vísindamenn hafa gleggri mynd af því áður en langt um líður.

Sjá einnig: Auknar líkur á að 90 metra langur loftsteinn lendi í árekstri við jörðina

Þeim sem hafa áhyggjur er þó bent á að yfirgnæfandi líkur eru á að enginn árekstur verði.

Jótlandspósturinn ræddi í vikunni við Line Drube, stjarneðlisfræðing við DTU, sem sagði að loftsteinninn gæti valdið mikilli eyðileggingu ef til áreksturs kemur en ekki heimsendi.

„Tvö prósent eru ekki hætta sem maður á að líta fram hjá. Það þarf því að halda áfram að fylgjast með braut hans. Annað hvort sjáum við að það dregur úr hættunni eða þá að hún eykst. Þeim mun lengri tími sem líður, þeim mun betur munum við vita hvort hann lendir á okkur eða ekki. Á einhverjum tímapunkti verður líka hægt að segja til um hvar hann lendir ef hann hittir jörðina,“ sagði Line og bætti við að árekstur færi ekki fram hjá neinum.

„Ef hann lendir á byggðu svæði, verða afleiðingarnar mjög miklar. Ef hann lendir í sjónum, getur maður ímyndað sér að hann myndi mikla flóðbylgju. Ég þori ekki að segja til um hversu stór hún gæti orðið en ef hún berst í allar áttir, þá getur þetta orðið mjög alvarlegt,“ sagði hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Írski boxarinn John Cooney er látinn – Fékk heilablæðingu eftir bardaga

Írski boxarinn John Cooney er látinn – Fékk heilablæðingu eftir bardaga
Pressan
Fyrir 2 dögum

Enn banvænna afbrigði af apabólu fannst á Írlandi

Enn banvænna afbrigði af apabólu fannst á Írlandi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rannsókn sýnir hvaða karlar gera konur hamingjusamari

Rannsókn sýnir hvaða karlar gera konur hamingjusamari
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svikahrappur hélt að 100 ára maður væri auðvelt fórnarlamb – Hafði algjörlega rangt fyrir sér

Svikahrappur hélt að 100 ára maður væri auðvelt fórnarlamb – Hafði algjörlega rangt fyrir sér
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lagaprófessor rekur hvernig Elon Musk hefur mölbrotið lög undanfarið – „Þetta er mjög furðulegt og líklega ólöglegt“

Lagaprófessor rekur hvernig Elon Musk hefur mölbrotið lög undanfarið – „Þetta er mjög furðulegt og líklega ólöglegt“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fjögur merki um að þú eigir að biðja um launahækkun

Fjögur merki um að þú eigir að biðja um launahækkun