South Georgia er breskt yfirráðasvæði. Þar búa milljónir mörgæsa og sela og nokkrir vísindamenn. Ísjakinn, sem nefnist A23, brotnaði frá Suðurskautslandinu í desember og hefur rekið til norðurs síðan. Reiknað er með að hann nái til South Georgia á næstu tveimur til fjórum vikum.
Sky News segir að sérfræðingar hafi miklar áhyggjur af afdrifum dýralífs á eyjunni ef ísjakinn strandar á grunnsævi við hana, því það getur lokað mikilvægum leiðum mörgæsa þegar þær fara til fæðuöflunar.
Foreldrar gætu neyðst til að synda lengra en áður, til að komast í fæðu, og eyða þar með meiri orku sem aftur myndi leiða til þess að þeir kæmu ekki með eins mikið æti handa ungum sínum og fram að þessu.
British Antarctic Survey segir að þetta geti aukið dánartíðnina mikið hjá mörgæsum.