fbpx
Föstudagur 31.janúar 2025
Pressan

Leiðavísir til að lifa af alræði vekur athygli á ný eftir fyrstu daga Trump í embætti

Pressan
Föstudaginn 31. janúar 2025 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump tók aftur við embætti forseta Bandaríkjanna þann 20. janúar og á aðeins 11 dögum hefur hann sett allt á annan endann í ríkisrekstrinum.

Bandarískir ríkisstarfsmenn hafa nú fengið boð um 8 mánaða starfslokasamning ef þeir segja starfi sínu lausu fyrir 6. febrúar. Margir telja ljóst að þarna freisti Trump þess að umkringja sig áhangendum og tryggja að farið sé að hans vilja í einu og öllu.

Eins hefur Trump gefið það til kynna að ekki sé útilokað að hann sækist eftir endurkjöri. Samkvæmt núverandi lögum má Bandaríkjaforseti aðeins sitja tvö kjörtímabil og Trump hefur þegar setið eitt. Nú þegar hefur verið lagt fram frumvarp sem, ef það verður að lögum, myndi gera honum kleift að sitja þriðja kjörtímabilið. Hann hefur eins sagt, líklega í gríni, að kjörtímabilin gætu jafnvel orðið fjögur.

Andstæðingar Trump og ríkisstarfsmenn óttast nú að Trump sé að stefna að alræði. Endalok lýðveldisins séu handan við hornið og Bandaríkin undir fasískum hæl.

Rétt er að geta þess að slíkar áhyggjur eru ekki nýjar af nálinni heldur þvert á móti. Eftir að Trump tók við embætti í janúar 2017 fór af stað bylgja á samfélagsmiðlum sem vakti mikla athygli þá og svo aftur núna. Þá birtust margar færslur á samfélagsmiðlinum Twitter (sem heitir X í dag). Færslurnar áttu það sameiginlegt að þar var notuð undirskriftin: „Með kærleika – vinir ykkar í Austur-Evrópu“ og færslurnar voru merktar myllumerkinu #LæriðAfEvrópu.

Færslurnar vöktu svo mikla athygli að þær voru þýddar yfir á fjölda tungumála, gefnar út í mótmælabæklingum, hafa verið rannsakaðar af minnst tveimur bandarískum háskólum og til þeirra hefur verið vitnað í fjölmiðlum.

Það var svo Martin Mucielski sem tók að sér að taka færslurnar saman í heildstæðan texta og birti þær svo sem eina heild árið 2018 sem eins konar leiðarvísi fyrir Bandaríkjamenn sem vilja komst í gegnum alræðisstjórn.

Enska textann má finna hér, en hér fyrir neðan verður stiklað á stóru yfir það helsta sem kemur þar fram.

Við hverju má búast undir alræðisstjórn?

Austur-evrópsku vinirnir benda á að alræðisstjórnin muni komast til valda með því að beita herferðum sem byggja á ótta, hræðsluáróðri og afbökun staðreynda. Hún kemst til valda með lýðræðislegri kosningu og mun nota þá staðreynd sem vopn til að réttlæta allt sem hún gerir – þau fengu umboð fólksins og því hafa þau umboð til að gera það sem þarf, svo sem að afskræma lýðræðið.

Bandaríkjamenn eru minntir á að lýðræðislega kjörin ríkisstjórn hefur þó ekki umboð til að grafa undan lýðræðinu, brjóta lög landsins og fara á svig við stjórnarskrá.

Eins er bent á að þessi stjórn muni viljandi reyna að sundra þegnum sínum, skipta þeim í hópa á borð við föðurlandsvini og föðurlandsóvini. Þeir sem kyssa ekki vöndinn eru óvinir ríkisins og þeim verður kennt um allt sem miður fer.

Aðför verður svo gerð að frjálsri fjölmiðlun. Helstu fjölmiðlar verða að áróðursvélum og þeir blaðamenn sem reyna að standa í fæturna verða útilokaðir frá upplýsingum, kallaðir falsfréttamenn og jafnvel dregnir fyrir dóm.

Alræðisstjórnin mun notfæra sér óreiðu. Hún mun gera mikið úr frekar ómerkilegum málum, sprengja þau upp sem skandala, urða yfir andstæðinga sína haldlausum ásökunum og allt gert til að kasta olíu á eldinn. Á meðan mun stjórnin nýta sér það að almenningur hefur um annað að hugsa til að lauma í gegn lagabreytingum sem grafa undan lýðræðinu.

Alræðisstjórnin mun viljandi leggja fram umdeild frumvörp sem verður mótmælt. Hún mun svo taka þau til baka svo fólkið upplifi sigurvímu, en nýta þessa truflun til að halda áfram að leysa upp lýðræðið.

Minnihlutahópar og konur verða tekin fyrir. Útlendingar og innflytjendur gerðir að óvinum sem og ákveðnir kynþættir, trúarhópar, hinsegin samfélagið og fleiri. Grafið verður undan réttindum þessara hópa og jafnrétti kynjanna.

Áhangendum verður komið fyrir á æðsta dómstiginu svo alræðisstjórnin nái sínu fram án þess að þurfa að hafa áhyggjur af stjórnarskránni.

Tákn þjóðarinnar, fáni, skjaldmerki og þjóðsöngur verða gerð að tákni alræðisins. Sagan verður endurskrifuð svo hún henti stefnu alveldisins og börnum verður innrætt „rétta“ hugmyndafræðin í skólum.

Alræðisstjórnin mun einangra ríkið frá alþjóðasamfélaginu, rústa efnahaginum til að uppfylla popúlistaloforð sín og loks verður ráðist á kosningakerfið til að tryggja áframhaldandi völd.

Verkefnalisti alræðisstjórnarinnar

Samkvæmt færslunum mun alræðisstjórnin ráðast í verkefni á borð við eftirfarandi:

  • Sigra kosningar með hræðsluáróðri og popúlískum loforðum.
  • Hreinsa út embættismenn og forstöðumenn ríkisstofnana sem eru valdinu ekki hliðhollir og skipta út fyrir hollvini hvort sem þeir eru hæfir til embættis eða ekki.
  • Grafið undan trausti til fjölmiðla með því að kalla alla gagnrýnar fréttir falsfréttir, alla sjálfstæða miðla falsmiðla og saka blaðamenn um að vinna gegn hagsmunum þjóðarinnar.
  • Stuðningur fólksins fenginn með lygum
  • Pólitískir andstæðingar málaðir sem óvinir ríkisins og mótmælendur uppnefndir föðurlandssvikarar sem eru á vegum spilltrar elítu sem vill ná völdum.
  • Takmarka rétt fólks til að koma saman til að fyrirbyggja mótmæli og til að fyrirbyggja andspyrnu.
  • Taka yfir dómstóla með því að koma áhangendum að sem tryggja framgang nýrra laga þó þau brjóti gegn stjórnarskrá.

Hvernig er hægt að lifa alræðið af?

Eins má í færslunum finna ráðleggingar um hvernig sé hægt að berjast gegn fasismanum. Þetta eru ráð á borð við eftirfarandi:

  • Ekki sýna tómlæti. Þetta mun varða þína hagsmuni á endanum eða hagsmuni fjölskyldu þinnar og vina. Láttu strax heyra í þér og sýndu að þér stendur ekki á sama.
  • Afhjúpið hræðsluáróður og lygar. Fræðið fólkið í kringum ykkur. Alræðið mun gera tilraun til að afbaka sannleikann og endurskrifa söguna. Ekki leyfa þeim að komast upp með það.
  • Mótmæltu. Alræðisstjórnin er skipulögð og andspyrnan þarf að vera það líka. Látið heyra í ykkur á götum úti. Þið getið gert þau afturreka í krafti fjöldans.
  • Ekki láta sundra ykkur og draga ykkur í dilka. Þið eruð ein þjóð þrátt fyrir ólík trúarbrögð og ólíka hugmyndafræði. Fjölbreytileikinn er styrkur. Standið sameinuð til að verja tilvist þjóðar, frelsis og lýðræðis.
  • Ekki gefast upp þó á móti blási og ekki treysta því að þetta reddist. Þau munu ráðskast með ykkur, stýra fréttum, krukka í kosningakerfinu – allt til að halda völdum til frambúðar.
  • Ef allt bregst þurfið þið að tryggja að á næsta kjördegi kjósið þið ekki sömu fautana yfir ykkur aftur.

Hvað með stuðningsmenn fasistanna?

Sjónunum er eins beint að þeim sem styðja alræðið og er fólki ráðlagt að auka ekki sundrung með því að útiloka stuðningsmennina. Þvert á móti þarf að leitast við að skilja hvers vegna stuðningsmenn alræðisins kusu það viljandi yfir sig.

  • Ekki líta niður á þá og ekki tala niður til þeirra. Ekki predika heldur reynið frekar að skilja þá. Hvaðan eru þeir að koma, hver eru vandamál þeirra og hvers vegna sjá þeir launsina í alræði. Komið fram við þá sem fólk og sem jafningja. Þeir telja sig hafa rétt við og gætu haft góða ástæðu fyrir því.
  • Ekki missa stórn á tilfinningum ykkar og ekki leyfa þeim að ögra ykkur. Mætið þeim af yfirvegun. Því reiðari sem þeir verða því rólegri ættuð þið að verða.
  • Horfið á það sem þið eigið sameiginlegt. Notið þeirra tungumál og ekki láta eins og þið séuð yfir þá hafin. Ef þeir bölva, bölvið með þeim. Ef þeir hafa húmorinn að vopni, svarið með húmor. Sýnið þeim að þið eruð ekki svo ólík. Þannig getið þið fundið milliveg og átt skynsamlegt samtal.
  • Ekki útiloka miðla þeirra, ekki snúa baki við leiðtogum þeirra og áhrifavöldum. Ef þið verðið vör við lygar eða rangfærslur bendið á það í rólegheitunum með rökum sem byggja á skynsemi og staðreyndum.
  • Bendið þeim á það hvernig alræðið hefur áhrif á þeirra hag og á hag fjölskyldna þeirra og ástvina. Ef allt bregst – ekki yfirgefa þá og ekki snúa við þeim baki. Það er einmitt það sem alræðið vill – sundra og stjórna. Bjóðið þeim áfram í veislur, í bjór og hver veit kannski mun það bera árangur enn daginn.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Trump vill senda 30 þúsund innflytjendur til Guantánamoflóa

Trump vill senda 30 þúsund innflytjendur til Guantánamoflóa
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vill banna sjálfsfróun – Segir að frjóvgunarferlið hefjist þegar karlmanni rís hold

Vill banna sjálfsfróun – Segir að frjóvgunarferlið hefjist þegar karlmanni rís hold
Pressan
Fyrir 4 dögum

Átta merki þess að barnið þitt (og aðrir ástvinir þínir) sé narsissisti

Átta merki þess að barnið þitt (og aðrir ástvinir þínir) sé narsissisti
Pressan
Fyrir 4 dögum

Það að kona neiti að stunda kynlíf er ekki rangt og það er ekki skilnaðarsök segir Mannréttindadómstóllinn

Það að kona neiti að stunda kynlíf er ekki rangt og það er ekki skilnaðarsök segir Mannréttindadómstóllinn
Pressan
Fyrir 5 dögum

Nokkur merki um að einhverjum líki ekki við þig

Nokkur merki um að einhverjum líki ekki við þig
Pressan
Fyrir 5 dögum

Hér er besti matur í heimi

Hér er besti matur í heimi