Sky News segir að nýrað hafi verið grætt í Looney í nóvember en hún hafði verið á biðlista eftir nýju nýra í tæp átta ár og átti litla von um að nýra myndi finnast handa henni.
Hún gaf móður sinni nýra 1999 en síðan brást hennar eigin nýra nokkrum árum síðar vegna vandamála sem komu upp á meðgöngu.
Hún segir að henni líði eins og „ofurkonu“ eftir vel heppnaða aðgerð og segist halda ættingjum sínum uppteknum með að fara í langar gönguferðir um New York borg.
Hún útskrifaðist af sjúkrahúsi 11 dögum eftir ígræðsluna en hefur verið í New York til að læknar geti fylgst með henni. Hún fær væntanlega að fara heim til Alabama fljótlega.