Momika þessi kom til Svíþjóðar sem flóttamaður frá Írak og kallaði hann eftir því að Kóraninn yrði bannaður í landinu – uppátæki sem vakti reiði margra. Hann hafði sætt miklum hótunum og var til dæmis ráðist á hann í Södertalje sumarið 2023.
Sjá einnig: Ráðist á mann sem hefur staðið fyrir mörgum Kóranbrennum
Momika og annar karlmaður, Salwan Najem, höfðu báðir verið ákærðir fyrir hatursorðræðu í tengslum við brennurnar og átti dómur í máli þeirra að falla í dag. Dómsuppsögunni hefur nú verið frestað þar til eftir helgi.
Lögreglumenn komu að Salwam, illa særðum eftir skotsár, í íbúðinni og var hann fluttur á slysadeild þar sem hann lést af sárum sínum skömmu síðar.
Fimm hafa verið handteknir í tengslum við morðið í gærkvöldi.
„Ég er næstur,“ sagði Najem, félagi Momika, á samfélagsmiðlinum X eftir að fréttir af morðinu spurðust út í morgun.