Frumvarpið hefur vakið töluverða athygli á samfélagsmiðlum og finnst mörgum það ansi skondið.
NBC News segir að ólíklegt megi teljast að frumvarpið verði samþykkt en ef svo fer nú eftir allt saman, þá verður körlum bannað með lögum að stunda sjálfsfróun.
Ástæðan er að í frumvarpinu segir að það verði ólöglegt fyrir „manneskju að losa sig við erfðaefni nema ætlunin sé að frjóvga fósturvísa“.
Tvær undanþágur eru þó gerðar á þessu í frumvarpinu.
Önnur er að þá má stunda sjálfsfróun ef markmiðið er að gefa sæðið í sæðisbanka. Það verður einnig heimilt að hafa sáðlát, þegar ekki á að búa til barn, ef getnaðarvörn er notuð. Ekkert kemur fram um hvort sjálfsfróun verði einnig undanþegin banninu.
Blackmon segir að líta eigi á frumvarpið sem svar við frumvarpi, sem var lagt fram á síðasta ári, sem beinist að aðgengi kvenna að þungunarrofi og getnaðarvörnum.
„Um allt land, sérstaklega hér í Mississippi, beinast langflest lagafrumvörp varðandi getnaðarvarnir og þungunarrof að konum, á sama tíma eru karlmenn helmingurinn af dæminu. Þetta frumvarp dregur þá staðreynd fram og dregur hlutverk karlmannsins inn í samtalið. Fólk getur reiðst og kallað þetta „fáránlegt“ en það skiptir mig engu,“ skrifaði hann.