Naylor segist hafa sætt bæði andlegum og líkamlegum árásum síðan þetta gerðist. Lögreglan óskaði eftir aðstoð almennings við að bera kennsl á manninn, sem fróaði sér í strætisvagninum, og var bent á Naylor eftir að hafa birt mynd úr eftirlitsmyndavél strætisvagnsins.
Það skipti lögregluna engu að Naylor er ekki vitund líkur manninum á myndinni, hann var samt sem áður handtekinn.
Fróaranum var lýst sem „þybbnum“ og rúmlega 180 cm á hæð. Naylor er töluvert lægri en það og mun grennri en fróarinn. Samt sem áður taldi lögreglan líklegt að hann væri sökudólgurinn.
Þegar honum hafði verið haldið í fangaklefa í sjö klukkustundir ræddi háttsettur lögreglumaður við hann og áttaði sig um leið á að þetta væri ekki fróarinn.
Naylor var þá sleppt úr haldi en skaðinn var skeður því nágrannar hans sáu þegar hann var handtekinn.
Naylor er fatlaður og hefur lent í miklum hremmingum í kjölfar handtökunnar. Hann var borinn út úr íbúð sinni og meinaður aðgangur að uppáhaldsbörunum sínum.
Hann hefur verið áreittur andlega og líkamlega, nú síðast fyrir jól var hann lagður inn á sjúkrahús eftir að hafa verið laminn í höfuðið með glerflösku.
Naylor réð lögmann til að annast mál sitt og nýlega samdi lögreglan um að greiða honum bætur upp á sem svarar til um 900.000 króna vegna málsins.