Jim Thorpe, sem nefndur er í höfuðið á samnefndum bandarískum Ólympíuverðlaunahafa, er fjögur þúsund manna bær rúma hundrað kílómetra norðvestur af Philadelphiu.
Andrew var á leið út í búð og gekk á göngustíg sem liggur með fram skóglendi þegar svartbjörnin kom upp út úr skógarrjóðrinu og réðst á hann. Hann bæði klóraði hann og beit með þeim afleiðingum að Andrew féll í jörðina og átti í raun við ofurefli að etja.
Sem betur fer sá nágranni hvað var í gangi og var hann fljótur að ná í skotvopn og drepa björninn.
Eftir að rannsóknir voru gerðar á birninum kom í ljós að hann var sýktur af hundaæði. Andrew hlaut viðeigandi meðferð strax og er búist við því að hann nái fullum bata.
Sjálfur segir hann við bandaríska fjölmiðla að hann sé leiður yfir örlögum bjarndýrsins. „Vanalega gera þeir manni ekki neitt en þeir eru svangir og ættu að vera í dvala. En veðrið í vetur hefur verið skrýtið: heitt, kalt, milt, kalt. En þetta hefði getað farið miklu verr,“ segir hann.
Andrew má teljast heppinn að hafa hlotið strax viðeigandi meðferð enda er hundaæði banvænn sjúkdómur þegar einkenni byrja að koma fram. Einkenni byrja vanalega að koma fram nokkrum vikum eftir útsetningu og mjög mikilvægt að fá bóluefni við veirunni innan nokkurra klukkustunda frá biti eða klóri.
Í frétt CBS News kemur fram að svartbjörnum í Pennsylvaníu hafi fjölgað hratt síðustu áratugi. Á áttunda áratugnum voru aðeins um 4.000 svartbirnir í ríkinu en nú er talið að þeir séu um 18 þúsund. Sjaldgæft er að þeir beri með sér hundaæði.